A4
A4
A4

A4 Hafnarfjörður - Skemmtilegt hlutastarf

A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa í nýja verslun okkar í Hafnarfirði. Við leitum eftir ábyrgðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi í hlutastarf. Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, fylla á vörur, framstillingar í búðinni og afgreiðsla á kassa.
Unnið er einn til tvo virka daga eftir hádegi og annan hvern laugardag.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
  • Önnur almenn verslunarstörf

Hæfniskröfur og reynsla:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni.
  • Íslenskukunnátta
  • 18 ára aldurstakmark

Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2025.
Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að sækja um starfið, óháð kyni

Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjórinn Kolbrún í síma 773-0026.

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 130 manns.

Utworzono ofertę pracy8. September 2025
Termin nadsyłania podań18. September 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Fjarðargata 9A, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (1)