AndRými Studio
AndRými Studio
AndRými Studio

Umbreytandi Öndunarvinna

AndRými Breathwork býður upp á 90 mínútna tíma í Umbreytandi öndunarvinnu (Breathwork Transformation).

Umbreytandi öndunarvinna er kraftmikil öndunaraðferð þar sem unnið er með samfellda, hringlaga öndun ásamt tónlist og leiðsögn. Öndunin getur kallað fram sterka líkamlega, tilfinningalega og huglæga upplifun og skapað rými fyrir djúpa sjálfsskoðun, aukna sjálfsvitund og breytt meðvitundarástand.

Í tímanum er þátttakendum leiðbeint í gegnum öflugt innra ferli þar sem athyglinni er beint að líkamanum, tilfinningum og þeirri upplifun sem kemur upp hverju sinni.

Í tímanum er meðal annars unnið með:
• kraftmikla hringlaga öndun
• tónlist sem styður ferlið
• líkamsvitund og sjálfsskoðun
• tilfinningalega úrvinnslu
• aukna sjálfsvitund
• djúpa upplifun og innra ferli

Tímanum lýkur með núvitundarhugleiðslu þar sem gefið er rými til að koma rólega til baka, samþætta upplifunina og slaka á.

Hvar: Samkennd – Heilsusetur, Tunguhálsi 19, 2. hæð, 110 Reykjavík
Klukkan: 19:30–21:00
Verð: 7.500 kr.

Einnig er hægt að kaupa fjögur skipti á 20.000 kr. (5.000 kr. skiptið).

Skráning og nánari upplýsingar:
[email protected]

Leiðbeinandi: Margrét Sigurbjörnsdóttir, Breathwork Leader, hugleiðslu- og núvitundarkennari, reikimeistari og viðskiptafræðingur með MA-diplómu í jákvæðri sálfræði.

FB: AndRými - Breathwork

 

Rozpoczyna się
6. Oct 2026
Rodzaj
Na miejscu
Czas trwania
1 razy
Cena
7500 kr.
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie