Improvement
Improvement
Improvement

Skilvirki leiðtoginn

Glænýtt námskeið!

Skilvirki leiðtoginn

- umbótahugsun í lífi og starfi

Fyrir þau sem vilja ná meiri skilvirkni í lífi og starfi með því að nota heildræna umbótahugsun sem fyrirtæki hafa verið að nýta sér í fjölmörg ár. 

Meðal þess sem kennt er:
* Stefnumótun – hvað er mikilvægt fyrir þig, fjölskylduna eða fyrirtækið
* Jafnvægis demanturinn og lífshjólið
* Einföldum og bætum nærumhverfið með 5S aðferðafræðinni
* Betri yfirsýn yfir verkefni og aðgerðir með töflum og öðrum skipulags verkfærum
* Forgangsröðun fyrir hámarks skilvirkni – vinnum að réttum verkefnum ekki hraðar
* Hagnýtar æfingar í núvitund til þess að minnka streitu

Mikil sjálfsvinna og greining er á námskeiðinu. Í lok námskeiðs er lagt upp með að þátttakendur hafi öðlast ný viðhorf gagnvart umbótahugsun ásamt fjölda tóla og tækja sem hægt er að nýta strax í einkalífi eða starfi.

Leiðbeinendur

Maríanna Magnúsdóttir og Viktoría Jensdóttir eru báðar verkfræðingar og hafa verið að kenna, veita ráðgjöf og nota umbótahugsun í lífi og starfi í yfir 15 ár. Þær brenna fyrir því að kenna fyrirtækjum og einstaklingum hvernig er hægt að ná árangri í takt við þá stefnu sem þau hafa sett sér. 

Námskeiðið er haldið í tveimur hlutum:
Lota 1: 12.nóvember 17:00-18:30, rafrænt á Zoom
Lota 2: 16.nóvember 9:00-16:00, haldið í Samkennd heilsusetur, Tunguhálsi 19. 

Verð: 49.500kr
Athugið – mörg stettarfélög niðurgreiða námskeið að hluta eða fullu.

Skráning á www.improvement.is eða www.lean.is

Rozpoczyna się
12. Nov 2024
Rodzaj
Szkoła dzienna i zdalna
Czas trwania
2 razy
Cena
49 500 kr.
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie