Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk
Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk
Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk

Yfirvélstjóri

Þörungarverksmiðjan hf. leitar eftir yfirvélstjóra á skip sitt, Gretti BA 39

Grettir siglir til þangsláttumanna víðs vegar um Breiðafjörð og sækir hjá þeim þangpoka og flytur heim að verksmiðju. Siglt er 3-5 sinnum í viku, reynt er að hafa sjóferðir á virkum dögum og frí um helgar. Siglingartími ræðst að mestu út frá sjávarföllum. Yfirvélstjóri sér um viðhald skipsins og rekstur samhliða skipstjóra. Góð verkleg kunnátta er æskileg.

Æskilegt er að umsækjandi hafi góða öryggisvitund og sé viljugur að taka þátt í því öryggisstarfi sem fer fram í Þörungaverksmiðjunni.

Þörungaverksmiðjan hvetjur konur jafnt sem karla til þess að sækja um starf í góðu og öruggu vinnuumhverfi Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rekstur skips
  • Lestun á þangi og þara
  • Viðhalds- og viðgerðarvinna í Gretti
  • Tilfallandi viðhaldsverkefni í verksmiðju og á öðrum skipum fyrirtækisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • VS III vélstjórnarréttindi (750KW)
  • Gilt skírteini úr sjómannaskólanum Sæbjörgu
  • Öryggisvitund
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
  • Íbúðarhús fylgir starfi
Advertisement published8. April 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Optional
Intermediate
Location
Karlsey verksmiðjuh 139663, 380 Reykhólahreppur
Type of work
Professions
Job Tags