

Yfirsjúkraþjálfari á Eir, Skjóli og Hömrum
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum yfirsjúkraþjálfara til að leiða starf sjúkraþjálfunar á hjúkrunarheimilunum Eir, Skjóli og Hömrum.
Innan starfssviðs er meðal annars þátttaka í og skipulagning sjúkraþjálfunar fyrir endurhæfingardeild Eirar þar sem rekið er öflugt endurhægfingarstarf í samstarfi við Landspítala.
Yfirsjúkraþjálfari sér um að starfsemi sjúkraþjálfunar á heimilunum gangi sem best og samræmist stefnu og markmiðum þeirra.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og mikilvægt hlutverk þar sem lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, þverfaglegt samstarf og einstaklingsmiðaða þjónustu við íbúa og skjólstæðinga. Yfirsjúkraþjálfari ber ábyrgð á skipulagningu og þróun sjúkraþjálfunar ásamt daglegri faglegri forystu innan deildarinnar.
- Fagleg stjórnun , rekstur og ábyrgð á starfsemi sjúkraþjálfunar á heimilunum Eir, Skjól og Hömrum
- Yfirumsjón með skipulagningu, þjónustu, mönnun og forgangsröðun verkefna.
- Leiðsögn, stuðningur og þróun starfsfólks sjúkraþjálfunar.
- Gæðastarf, verklagsþróun og þátttaka í umbótaverkefnum
- Þátttaka í fagþróun og innleiðing nýjunga í öldrunarþjónustu.
- Skipulag og umsjón með verknámi nema í sjúkraþjálfun frá HÍ.
Klínísk starfsemi og teymisvinna
- Almenn sjúkraþjálfun: skoðun, mat og meðferð skjólstæðinga endurhæfingardeildar og/eða íbúa á heimilunum.
- Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu og stefnumótun á heimilunum.
- Samskipti og samráð við aðstandendur, lækna og aðra samstarfsaðila.
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Reynsla af endurhæfingu og/eða öldrunarþjónustu er kostur
- Reynsla af stjórnun eða leiðtogahlutverki er æskileg
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Áhugi á þróun og uppbyggingu faglegs starfs
- Jákvætt viðmót og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Góð íslenskukunnátta
- Skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustu og fagstarfs
- Sterkt þverfaglegt samstarf
- Lifandi vinnustað og skemmtilegt starfsumhverfi
Icelandic


