Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Yfirljósmóðir óskast til starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU)

Yfirljósmóðir óskast til starfa á heilbrigðisstofnun Suðurlands

HSU leitar að reyndum og framsæknum leiðtoga í starf yfirljósmóður. Viðkomandi mun fara með faglega forystu í ljósmæðrastörfum á Suðurlandi, móta framtíðarsýn fyrir þjónustuna og tryggja að barnshafandi konur og fjölskyldur þeirra njóti bestu mögulegu umönnunar. Starfið hentar vel þeim sem hafa brennandi áhuga á að þróa og efla ljósmæðraþjónustu og vilja hafa raunveruleg áhrif á heilbrigðisþjónustu í heilu landshéraði.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fagleg forysta í ljósmæðrastörfum og þjónusta við skjólstæðinga stofnunarinnar.

Mönnun, stuðningur við starfsþróun ljósmæðra og önnur mannauðstengd mál.

Yfirsýn og samhæfing ljósmæðraþjónustunnar á Suðurlandi, þar með talið mæðraverndar, fæðingaþjónustu, göngudeildarþjónustu og leghálsskimana.

Þátttaka í stefnumótun, markmiðasetningu og árangursmælingum.

Efling kennslu og endurmenntunar, uppbygging sérhæfingar meðal ljósmæðra.

Ábyrgð á gæða- og öryggismálum.

Innleiðing nýjunga¿í þjónustu og verklagi.

Þátttaka í klínísku starfi.

Náið samstarf og teymisvinna með öðrum fagstéttum.

Menntunar- og hæfniskröfur

Starfsleyfi ljósmóður frá Embætti Landlæknis.

Farsæl stjórnunarreynsla æskileg.

Metnaður og áhugi á þróun ljósmæðraþjónustu.

Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum auk leiðtogahæfileika.

Jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun.

Önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi æskileg.

Advertisement published8. September 2026
Application deadline21. September 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Type of work
Professions
Job Tags