
Fastus
Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæðavörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Höfuðstöðvarnar eru að Höfðabakka 7 í Reykjavík, þar sem öll helsta starfsemi fer fram undir einu þaki: heildverslun, skrifstofur, sýningarsalur, fageldhús, vöruhús, verkstæði og varahlutalager. Þjónustustaðir eru einnig á Akureyri og Selfossi.
Fyrirtækið veitir heildstæða þjónustu með breiðu vöruframboði, faglegri ráðgjöf, uppsetningum og viðhaldi á innfluttum tækjabúnaði.
Söludeildir eru sérhæfðar:
• Fastus heilsa þjónustar heilbrigðisgeirann með lausnum allt frá rekstrarvörum til flókins tækjabúnaðar
• Fastus lausnir þjónustar veitingastaði, hótel og fyrirtæki með borðbúnað, tæki, húsgögn og innréttingar.
• Tæknideildin, Fastus expert, sér um uppsetningu, viðgerðir, viðhald og gæðaheimsóknir.
• Innri þjónusta styður við allar deildir, m.a. í fjármálum, markaðsmálum, gæðamálum, upplýsingatækni, vörustýringu og mannauði.
Dótturfélög Fastus eru HealthCo og Frystikerfi.

Vörustjóri með þekkingu hjálpartækjum
Við leitum að kraftmiklum og öflugum einstaklingi í 100% starf við sölu og ráðgjöf á hjálpartækjum.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni, bæði í samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk, notendur og við innleiðingu og kynningu á lausnum sem stuðla að betri meðferð og bættri þjónustu.
Viðkomandi þarf að hafa metnað til að byggja upp traust viðskiptasambönd og áhuga á því að vinna með hágæðavörum frá leiðandi framleiðendum.
Um 100% starf er að ræða.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Geir Andersen, mannauðsstjóri Fastus í gegnum netfangið [email protected]
Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum alfred.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og sala á hjálpartækjum
- Þjálfun og innleiðing til viðskiptavina
- Leita að nýjum sóknarfærum á vaxandi markaði
- Vinna við útboð
- Samskipti við heilbrigðisstarfsfólk, notendur, birgja og aðra hagaðila
- Kynningar og ráðstefnur innanlands og erlendis
- Önnur spennandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Heilbrigðismenntun sem nýtist í starfi
- Þekking og/eða reynsla af hjálpartækjum er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Advertisement published7. July 2026
Application deadline19. July 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Höfðabakki 7, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
ReliabilityProfessionalismQuick learnerNursePositivityHuman relationsAmbitionContractsPhone communicationEmail communicationConscientiousIndependenceParamedicFlexibilityTeam workBusiness relationsProduct managementCustomer serviceDevelopmental counselor
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Sérfræðingur í heilbrigðistækni
Öryggismiðstöðin

Iðjuþjálfi - Hrafnista Hraunvangi
Hrafnista

Málastjóri með heilbrigðismenntun - Laugarás meðferðargeðdeild
Landspítali

Hjúkrunardeildarstjóri á nýrri bráðamatsdeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Vaktstjóri - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Sjúkraþjálfari á göngudeild grindarbotns
Landspítali

Hjúkrunardeildarstjóri/hótelstjóri sjúkrahótels við Hringbraut
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í Bráða- og ráðgjafarþjónustu geðsviðs
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur / Sjóntækjafræðingur
Sjónlag

Ert þú hjúkrunarfræðingurinn sem við leitum eftir?
Landspítali