Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Vöruflokkastjóri

Viltu vinna í einu líflegasta umhverfi landsins, innan um úrval af vörum frá stærstu íslensku og alþjóðlegu vörumerkjunum?

Ísland Duty Free leitar að öflugum vöruflokkastjóra áfengis, tóbaks og sælgætis (Category Manager LTC). Hlutverkið ber ábyrgð á að hámarka sölu og arðsemi þessara vöruflokka í verslunum fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli. Starfið felur í sér þróun og framkvæmd stefnu fyrir vöruflokkana, samskipti og samstarf við birgja og náið samstarf þvert á deildir og við hagsmunaaðila innan fyrirtækisins.

Hjá Ísland Duty Free er fólkið alltaf í fyrirrúmi, bæði samstarfsfólk og viðskiptavinir. Við trúum því að bestu upplifanirnar verði til í hvetjandi, öruggu og mannlegu umhverfi þar sem metnaður fær að blómstra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móta og aðlaga vöruúrval og verðstefnu innan vöruflokkanna
  • Þróa og innleiða söluáætlanir fyrir vöruflokkana, fylgjast með árangri og grípa til leiðréttandi aðgerða með því að framkvæma ítarlega greiningu á sölugögnum, markaðsþróun og frammistöðu vara
  • Greina samkeppnisumhverfi og móta framtíðaráherslur vöruflokkanna
  • Koma á og viðhalda samböndum við innlenda og erlenda birgja. Sjá um samninga í samvinnu við yfirmann vöruflokkastýringar
  • Skipuleggja og stýra söluaukandi aðgerðum, auk þess að tryggja árangursríka framkvæmd og eftirfylgni
  • Þróa áætlanir fyrir framboð og eftirspurn vara, þar með talið kynningar- og söluáætlanir, í samráði við yfirmann vöruflokkastýringar
  • Aðaltengiliður framkvæmdastjórnar, birgja og annarra hagsmunaaðila varðandi mál tengd vöruflokkunum
  • Skipuleggja og halda utan um vöruflokkatengda þjálfun starfsfólks, þar með talið leiðbeiningar um æskileg vinnubrögð
  • Umsjón með uppsetningu deilda til að hámarka upplifun viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða sem nýtist í starfi og reynsla af sambærilegu starfi á sviði vöruflokkastýringar eða smásölu. Þekking á vöruflokkum eins og áfengi, tóbaki og sælgæti er kostur
  • Framúrskarandi færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti, til að eiga árangursrík samskipti í alþjóðlegu umhverfi
  • Færni í samskiptum við hagsmunaaðila og hæfni til að stuðla að samvinnu á milli deilda.
  • Stefnumiðuð hugsun og geta til að móta og hrinda viðskiptaáætlunum í framkvæmd, auk reynslu af gerð söluáætlana, eftirfylgni og leiðréttandi aðgerðum
  • Reynsla í að nýta gögn við ákvarðanatöku, ásamt lausnamiðaðri og framsækinni nálgun við úrlausn  verkefna
  • Reynsla af skipulagningu og framkvæmd söluaukandi verkefna með skipulögðum og öguðum vinnubrögðum
  • Metnaður og árangursdrifið hugarfar með ríka áherslu á sölu og árangur
  • Þekking á SAP og Microsoft Office er kostur
Fríðindi í starfi

Líkamsræktarstyrkur

Ökutækjastyrkur

Niðurgreitt mötuneyti

Advertisement published23. July 2026
Application deadline16. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Financial planningPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ContractsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Definition of target groupsPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Business relationsPathCreated with Sketch.Brand management
Professions
Job Tags