Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing

Vilt þú starfa við umönnun í dagvinnu?

Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing leitar að öflugu starfsfólki í umönnun. Um hlutastarf eða fullt starf á dagvöktum er að ræða.

Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili.

Við leitum eftir einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks á góðum vinnustað.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Styðja, leiðbeina og hvetja þjónustuþega

- Aðstoða við athafnir daglegs lífs s.s. bað, klæðnað og aðrar athafnir

- Taka þátt í félagsstarfi, sbr. upplestri, handverki, leikfimi og hópastarfi

- Samskipti við aðstandendur þjónustuþega

Menntunar- og hæfniskröfur

- Reynsla af starfi með öldruðum er æskileg

- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum

- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji

- Góð samskipta- og skipulagshæfni

- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál

Advertisement published21. August 2026
Application deadline13. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Meðalhæfni
EnglishEnglish
Required
Meðalhæfni
Location
Urðarhvarf 16, 203 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags