
Síminn Pay
Síminn Pay er fjártæknifyrirtæki í eigu Símans þar sem hefur það að markmiði að þróa nýstárlegar fjártæknilausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Síminn Pay gefur út greiðslukort, Léttkort, í samstarfi við Mastercard og varð þá fyrsta íslenska fyrirtækið utan bankastofnanna til að gefa út kort.
Síminn Pay er traust og framsækið fyrirtæki sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar. Við bjóðum uppá aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki.

Viðskiptastjóri Símans Pay
Síminn Pay leitar að viðskiptastjóra fyrirtækjalausna sem hefur það hlutverk að taka þátt í sölu á fjártæknivörum fyrirtækisins á fyrirtækjamarkaði. Starfið felur í sér að selja og þjónusta lausnir til fyrirtækja og koma auga á tækifæri sem upp koma í samskiptum við viðskiptavini. Viðskiptastjóri fyrirtækjalausna Símans Pay kemur inn í lítið og öflugt teymi þar sem rödd allra fær að heyrast og ætlast er til að öll taki virkan þátt í mótun stefnu og vöruþróun Símans Pay.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Búa til ný viðskiptasambönd
- Heimsóknir og stöðufundir með viðskiptavinum
- Samnings- og tilboðsgerð
- Greiningar á viðskiptavinahópi
- Önnur verkefni tengd breytingum og þróun starfs og starfsumhverfis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða mikil reynsla af sölustörfum
- Víðtæk reynsla af sölustörfum á fyrirtækjalausnum
- Reynsla af fjármálaþjónustu er kostur
- Almenn þekking á íslensku atvinnulífi til þess að geta sett sig inn í mál viðskiptavina
- Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Söluáhugi og metnaður
- Fagmennska í framkomu og heiðarleiki
- Skipulagshæfni og vandvirkni
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Advertisement published24. November 2023
Application deadline11. December 2023
Language skills
No specific language requirements
Location
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
Public speakingAmbitionConscientiousPlanningSalesMeticulousnessCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (11)

Assistant Store Manager / Information Center Assistant Manager
Travelshift

Sölufulltrúi | Business Development Representative
Teya Iceland

Sölustjóri stáls
Ferro Zink

Verslunarstjóri S4S Premium Outlet
S4S Premium Outlet

Viðskiptastjóri einstaklinga á Selfossi
Íslandsbanki

Sölufulltrúi
BEWI

Viðskiptastjóri á Austurlandi
Landsbankinn

Senior Business Development Manager Medis
Medis

Sölustjóri - Founding Sales Executive (Iceland)
Treyst Solutions ehf.

FERÐASKRIFSTOFA - Utanlandsferðir
Ferðaland

Þjónusturáðgjafi
Alþjóðasetur