

Viðskiptastjóri
Ert þú að ljúka námi eða nýlega komin/n inn á vinnumarkað með brennandi áhuga á sölu og markaðsmálum? Líkar þér vel við að vera í samskiptum við fólk, ert hugmyndaríkur/hugmyndarík og vilt vinna þar sem þitt framlag skiptir máli? Þá viljum við heyra í þér.
Meniga leitar að jákvæðum og drífandi Viðskiptastjóra sem tekur virkan þátt í samskiptum við samstarfsfyrirtæki í tengslum við fríðindakerfi og Markaðsvakt Meniga, þjónustar notendur Meniga.is og tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum hér á landi. Tilvalið fyrir einstakling sem vill vaxa í starfi og fá traust til að bera ábyrgð á eigin verkefnum.
Um er að ræða fullt stöðugildi á skrifstofu Meniga í Turninum í Kópavogi. Meniga er gagnadrifið fjártæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í heimilisbókhaldslausnum og persónumiðuðum, stafrænum vörum fyrir banka. Meniga er einnig með skrifstofur í London og Varsjá og hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan bakgrunn. Viðskiptastjóri starfar í fámennu en samhentu og öflugu teymi þar sem áhersla er lögð á jákvæðni og lausnamiðað hugarfar.
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Spurningar og umsóknir sendist á [email protected]
- Sala og ráðgjöf til íslenskra fyrirtækja - allt frá litlum sérverslunum til stærstu fyrirtækja landsins
- Uppbygging og umsjón viðskiptatengsla
- Þátttaka í þróun markaðsgreininga og túlkun á gögnum
- Aðstoð við hugmyndavinnu og undirbúning kynningarefnis
- Samskipti og þjónusta við notendur Meniga samfélagsins
- Háskólanám sem nýtist í starfi
- Reynsla af sölu- og/eða markaðsstarfi er kostur
- Þekking á íslenskum einstaklingsmarkaði (B2C) er kostur
- Áhugi á markaðsgreiningum og gögnum
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar og jákvæðni
- Mjög gott vald á íslensku og ensku
- Líflegan og skemmtilegan vinnustað
- Alþjóðlegt og tæknidrifið starfsumhverfi
- Sveigjanlegan vinnutíma
- Frábært mötuneyti
- Íþróttastyrk
- Farsímastyrk
- Áskrift að síma og interneti
- Tækifæri til að byggja upp öflugt tengslanet í íslensku atvinnulífi
Icelandic
English


