Almannarómur
Almannarómur

Viðskipta- og þjónustustjóri Almannaróms

Almannarómur er miðstöð máltækni og gervigreindar og er óháð sjálfseignarstofnun sem ber m.a. ábyrgð á að framkvæma máltækniáætlun stjórnvalda, styrkja norrænt samstarfs gegnum New Nordics AI, styðja gervigreindarverkefni gegnum Evrópuverkefnin Glóð og Kveikju ásamt því að fræða þjóðina um gervigreind með viðburðarhaldi og skýrslunni „Staða gervigreindar á Íslandi“ sem er gefin út ársfjórðungslega.

Almannarómur leitar nú að viðskipta- og þjónustustjóra en megin áhersla hlutverksins til að byrja með verður að styðja við verkefnið Glóð. Glóð er framtak sem styður íslenska nýsköpun í gervigreind með aðgangi að sérfræðiþekkingu, gögnum og reikniafli (e. High Performance Computing eða HPC). Hún tengir saman fyrirtæki, sprota, opinbera aðila og rannsóknarsamfélagið til að hraða þróun og innleiðingu gervigreindarlausna. Verkefnið er hluti af EuroHPC og er leitt af Almannarómi í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Stofnun Árna Magnússonar, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Vísindagarða HÍ.

Helstu verkefni

  • Fyrsti og síðasti snertiflötur við viðskiptavini
  • Tekur á móti fyrirspurnum og leiðir viðskiptavini gegnum þjónustuferli Glóðar og
    fleiri verkefna innan Almannaróms.
  • Tengir notendur við sérfræðinga innan samstarfsnetsins
  • Á og rekur CRM-kerfið og byggir það upp þannig að það vinni fyrir teymið
  • Mælir ánægju notenda, fylgist með árangursmælikvörðum og skrifar skýrslur til
    EuroHPC
  • Tekur að sér efnisframleiðslu s.s. að skrifa árangurssögur og efni fyrir vef og
    samfélagsmiðla
  • Byggir upp samfélag í kringum Glóð og Almannaróm, tengir fólk saman og tekur
    virkan þátt í undirbúningi og framkvæmd viðburða
  • Önnur tilfallandi verkefni, s.s. með almennum stuðningi við markaðs-og
    kynningarmál miðstöðvarinnar, til dæmis með efnisgerð og virkri þátttöku í
    viðburðarhaldi

Einstaklingurinn sem við leitum að:

  • Hefur drifkraft og gengur í verkin án þess að bíða eftir fyrirmælum
  • Er opin og aðgengileg manneskja sem fólk vill leita til
  • Hefur áhuga á gervigreind og tileinkar sér nýja tækni
  • Hefur reynslu úr sölu, þjónustu eða viðskiptastjórnun
  • Hefur þekkingu og færni til að vinna í helstu CRM kerfum
  • Hefur færni til að vinna efni í t.d. Canva
  • Talar og skrifar góða íslensku og ensku
  • Hefur metnað til að straumlínulaga og styrkja þjónustu Almannaróms

Tæknilegur bakgrunnur eða þekking á reikniafli og gervigreind er kostur en ekki skilyrði.
Þetta er starf sem mun mótast í höndum þess sem sinnir því; þjónustuframboðið er í
þróun og gæti stækkað með fleiri verkefnum á næstu árum.

Almannarómur er á spennandi vegferð og verður þessi einstaklingur hluti af
metnaðarfullu og samheldnu teymi sem gengur í verkin og tekur virkan þátt í að ná
heildarmarkmiðum miðstöðvarinnar.


Umsóknir óskast ásamt ferilskrá. Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst.

Nánari upplýsingar veitir:
Kristján Pétur Sæmundsson, Brú Talent, [email protected]

Advertisement published20. August 2026
Application deadline30. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Bjargargata 1, 102 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags