66°North
66°North
66°North

Verslunarstjóri í verslunum 66°Norður í Kringlunni og Akureyri

66°Norður leitar að drífandi, lausnamiðuðum og metnaðarfullum leiðtogum með framúrskarandi samskiptahæfni til að gegna starfi verslunarstjóra í verslunum okkar í Kringlunni og á Akureyri.

Verslunarstjóri 66°Norður ber ábyrgð á daglegum rekstri verslunarinnar og gegnir lykilhlutverki í að skapa framúrskarandi upplifun fyrir bæði viðskiptavini og starfsfólk. Verslunarstjóri leiðir, styður og þjálfar söluteymið, setur skýr markmið og fylgir eftir árangri með það að leiðarljósi að hámarka sölu, þjónustugæði og árangur verslunarinnar.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með fólki, tekur frumkvæði og hefur metnað til að byggja upp öflugt og árangursdrifið teymi. Verslunarstjóri tryggir jafnframt að verslunin endurspegli vörumerki og gildi 66°Norður í hvívetna og að ásýnd, þjónusta og dagleg framkvæmd séu ávallt til fyrirmyndar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun verslunar og starfsmannahald
  • Virk þátttaka á sölugólfi
  • Stuðningur við teymið, þjónusta við viðskiptavini og eftirfylgni með sölumarkmiðum
  • Ábyrgð á mönnun, ráðningum, fræðslu og teymisþróun
  • Rekstrar- og kostnaðarstýring, ásamt markmiðasetningu og daglegu utanumhaldi
  • Tryggja framúrskarandi þjónustustig og jákvæða upplifun viðskiptavina
  • Umsjón með vöruframboði, birgðahaldi og framsetningu
  • Náin samskipti við stjórnendur og samstarfsaðila innan fyrirtækisins
  • Skipulagning, utanumhald og önnur hefðbundin verslunarstjórastörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verslunarrekstri og/eða stjórnunarreynsla er skilyrði
  • Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
  • Sterk þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt
  • Rekstrarlegur skilningur og hæfni til að greina tækifæri í rekstri
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Önnur tungumálakunnátta kostur
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og hæfni til að starfa undir álagi
  • Kunátta á Microsoft Dynamics AX er kostur
Advertisement published24. September 2026
Application deadline31. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Skipagata 9, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags