

Verslunarstjóri BIOEFFECT verslana
Verslunarstjóri í verslun BIOEFFECT
BIOEFFECT á Íslandi óskar eftir jákvæðum og söludrifnum verslunarstjóra. Starfið felur í sér sölu á hinum margverðlaunuðu húðvörum BIOEFFECT í verslunum okkar í miðbæ Reykjavíkur; í Hafnarstræti og á Laugaveginum. Verslanirnar eru flaggskip vörumerkisins þar sem lögð er áhersla á góða sérþjónustu og persónulega ráðgjöf í afslöppuðu umhverfi.
Leitað er að starfsmanni í 80-100% starfshlutfalli.
Við hjá BIOEFFECT leggjum áherslu á að veita frábæra ráðgjöf og þjónustu til viðskiptavina okkar. Því leitum við að einstaklingi sem er framúrskarandi í samskiptum og sölu, með mjög ríka þjónustulund og jákvætt viðmót. Mikilvægt er að viðkomandi geti sýnt frumkvæði og drifkraft og unnið sjálfstætt.
Kostur er ef umsækjandi hefur mikinn áhuga eða reynslu af sölu á húðvörum.
Verslunarstjóri vinnur náið með sölu- og markaðsdeild BIOEFFECT.
- Dagleg ábyrgð á verslunum BIOEFFECT.
- Almenn afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
- Ábyrgð og eftirfylgni með mánaðarlegum sölumarkmiðum
- Ábyrgð á ásýnd og útliti verslana í samstarfi við markaðsdeild
- Umsjón með sölu, uppgjöri, pöntunum og birgðahaldi.
- Umsjón með starfsmannahaldi í samstarfi við sölustjóra
- Reynsla af sambærilegu starfi er skilyrði
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Brennandi áhugi á húðvörum
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Nám í snyrtifræði eða förðunarfræði er kostur
Icelandic
English



