Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit

Sumarstarf hjá Vinnuskóla: Verkstjóri

Hvalfjarðarsveit auglýsir eftir verkstjóra í vinnuskóla fyrir sumarið 2026. Um er að ræða starf á tímabilinu 18. maí til 14. ágúst.

Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.

Verkstjóri sér um almennt utanumhald og er tengiliður milli flokkstjóra. Vinnuskólinn sinnir almennum verkefnum sem lúta að umhirðu og snyrtingu í sveitarfélaginu.

Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl nk.

Nánari upplýsingar veitir Anna Guðrún Alexandersdóttir, verkefnastjóri Velferðar- og fræðsludeildar, í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 433-8500.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir almennum garðyrkjustörfum í sveitarfélaginu.
  • Ber daglega ábyrgð og yfirumsjón á skipulagningu og starfsemi vinnuskólans í samstarfi við verkefnastjóra Velferðar- og fræðsludeildar.
  • Hefur samskipti við forráðamenn og viðeigandi stofnanir.
  • Vinnur markvisst að því að efla liðsheild í hópnum.
  • Leiðbeinir um verklag og aðferðir, hefur eftirlit með að vel og rétt sé unnið.
  • Ber ábyrgð á að skila tímaskýrslum, vinnuseðlum og verkbeiðnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjandi skal vera 20 ára eða eldri.
  • Áhugi á að starfa með unglingum er skilyrði.
  • Reynsla af störfum með ungmennum er kostur.
  • Umsækjandi þarf að vera góð fyrirmynd og búa yfir góðri samskiptahæfni.
  • Umsækjendur þurfa að hafa bílpróf og hreint sakavottorð. Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 10. gr. laga nr. 70/2007.
Advertisement published27. March 2026
Application deadline12. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Innrimelur 3, 301 Akranes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.GardeningPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Planning
Suitable for
Professions
Job Tags