Eimskip
Eimskip
Eimskip

Verkstjóri í vöruhúsi á Akureyri

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi í starf verkstjóra í vöruhús á starfsstöð Eimskips á Akureyri. Starfið er fullt starf á dagvinnutíma. Yfirvinna getur komið til á álagspunktum.

Fyrir réttan aðila er í boði fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf með margvíslegum tækifærum.

Í anda jafnréttisstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkstjórn í vöruhúsi og vörudreifingu
  • Skipulag verkefna
  • Þjónusta við viðskiptavini
  • Almenn vöruhúsastörf
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsreynsla í vöruhúsi og við stjórnun er kostur
  • Lyftararéttindi (J) eru æskileg
  • Meirapróf (C) er æskilegt
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Heiðarleiki, stundvísi og metnaður
  • Almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli
Fríðindi í starfi
  • Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. samgöngustyrk og styrki vegna heilsuræktar, sálfræðiþjónustu og fleira
  • Niðurgreiddur hádegismatur í boði fyrir starfsólk
Advertisement published8. April 2026
Application deadline19. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Strandgata, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags