Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing

Verkefnastjóri við vaktavinnugerð

Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing óskar eftir að ráða verkefnastjóra við vaktavinnugerð til starfa. Um fullt starf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi. Verkefnastjóri ber ábyrgð á að hanna, samræma og halda utan um vaktaplön þannig að mönnun mæti þörfum vinnustaðarins á sama tíma og farið sé eftir lögum og kjarasamningum.

Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.

Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.

Við leitum að öflugum einstaklingi í starf verkefnastjóra til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun og gerð vaktskráa: Útfærsla á reglulegu vaktaplani sem tryggir rétta mönnun og tekur mið af óskum starfsmanna
  • Eftirfylgni með kjarasamningum: Tryggja að vaktavinnugerð uppfylli ákvæði um hvíldartíma og önnur réttindi
  • Kerfisstjórnun: Umsjón og vinna í vaktakerfi MTP
  • Breytingastjórnun og afleysingar: Bregðast við veikindum, leyfum eða skyndilegum mönnunarbreytingum
  • Önnur verkefni tengt skráningu 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og reynsla af verkefnastjórnun
  • Framúrskarandi skipulagshæfni
  • Hæfni til að vinna með flóknar upplýsingar undir tímapressu
  • Rík samskiptahæfni þar sem starfið krefst mikilla samskipta við starfsfólk og stjórnendur
  • Haldbær þekking á kjarasamningum vaktavinnufólks og vinnulöggjöf
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku  
Advertisement published9. October 2026
Application deadline25. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Urðarhvarf 16, 203 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags