Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkefnastjóri nýbyggingarverkefna

Umhverfis- og skipulagssvið leitar að drífandi einstaklingi í stöðu verkefnastjóra byggingarverkefna. Verkefnin krefjast mikillar þverfaglegrar samvinnu bæði innan fagsviða Reykjavíkurborgar sem og annarra hagsmunaaðila.

Deildin gerir frumathugun og þarfagreiningu á verkefnum, og heldur utan um hönnun og framkvæmdir á nýbyggingum, viðbyggingum og endurgerð fasteigna Reykjavíkurborgar.

Starfið er fjölbreytt og krefjandi í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á þverfaglega teymisvinnu og virðingu fyrir umhverfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og eftirfylgni með undirbúningi, hönnun og framkvæmdum byggingaverkefna
  • Verkefnastjórn, skipulagning og stjórnun verkefna.
  • Samskipti og samráð við notendur og hagsmunaaðila, íbúa, ráðgjafa, stofnanir innan og utan borgarkerfisins
  • Gerð sviðmynda- og þarfagreininga, kostnaðar, tíma- og framkvæmdaáætlana.
  • Rýni hönnunar- og útboðsgagna og umsjón og eftirfylgni með vinnu hönnuða og ráðgjafa
  • Samskipti/samráð við íbúa, hagsmunaðila, ráðgjafa, stofnanir, nefndir og ráð, skrifstofur og deildir innan og utan borgarkerfis um framkvæmdir einstakra verkefna.
  • Fylgist með að samþykktar forsendur fyrir framkvæmdum liggi fyrir svo sem aðal- og deiliskipulag, umhverfismat, samþykktir nefnda og ráða og almennar leyfisveitingar t.d. framkvæmdaleyfi, byggingaleyfi, heimild frá lögreglu o.þ.h.
  • Upplýsingamiðlun innan og utan borgarkerfisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. arkitektúr, verkfræði, tæknifræði, byggingarfræði, skipulagsfræðum. Framhaldsmenntun tengd málaflokki æskileg.
  • Samskiptahæfni sem miðar að því að starfa í hóp og verkefnateymum vegna umfangsmikilla skipulagsverkefna.
  • Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Haldbær reynsla af starfssviðinu kostur.
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
  • Hæfni til framsetningar og greiningar á flóknum gögnum og miðlun upplýsinga í ræðu og riti.
  • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á algengum skrifstofu-, hönnunar- og teikniforritum.
  • Íslenskukunnátta B2-C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma og enskukunnátta C1.
Advertisement published11. August 2025
Application deadline25. August 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Project management
Work environment
Professions
Job Tags