Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin

Verkefnastjóri í stafrænni þróun

Öryggismiðstöðin auglýsir eftir öflugum verkefnastjóra í stafrænni þróun til að leiða og halda utan um hugbúnaðarverkefni sem tengjast meðal annars Microsoft Dynamics, Power Platform og gervigreindarlausnum. Starfið er framtíðarstarf á samhentum, traustum og metnaðarfullum vinnustað. Starfið felur í sér greiningu, hönnun og eftirfylgni verkefna í nánu samstarfi við starfsfólk fyrirtækisins og samstarfsaðila. Verkefnastjórinn mun einnig taka þátt í þróunarvinnu eftir þörfum.

Helstu verkefni:

  • Greining á þörfum og tækifærum í stafrænni þróun.
  • Umsjón og eftirfylgni með hugbúnaðarverkefnum.
  • Leiða verkefni sem tengjast innleiðingu og nýtingu gervigreindarlausna.
  • Samvinna við innri og ytri aðila við hönnun og útfærslu lausna.
  • Þátttaka í þróunarvinnu, sérstaklega tengt Microsoft Dynamics og Power Platform.
  • Skilgreining og skjölun á kröfum og ferlum.
  • Tryggja að verkefni séu unnin innan tíma- og kostnaðaráætlana.

Menntun og reynsla:

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði, viðskiptafræði, verkefnastjórnun eða tengdum greinum.
  • Reynsla af verkefnastjórnun í hugbúnaðarþróun.
  • Þekking á Microsoft Dynamics og Power Platform er kostur.
  • Reynsla af greiningu og hönnun hugbúnaðarlausna.

Hæfni og eiginleikar:

  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymi.
  • Lausnamiðuð hugsun og frumkvæði.
  • Færni í að skjalfesta og miðla upplýsingum á skýran hátt.
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.

Umsóknarfrestur er til 21. júlí 2025. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásgeir Viðarsson, deildarstjóri UT, í gegnum netfangið [email protected]

Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu á sviði öryggis-, velferðar- og bílastæðalausna fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.

Advertisement published27. June 2025
Application deadline21. July 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Askalind 1, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.System architecturePathCreated with Sketch.Microsoft CRMPathCreated with Sketch.Microsoft Power PlatformPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.IT project management
Professions
Job Tags