Sláturhúsið menningarmiðstöð
Sláturhúsið menningarmiðstöð
Sláturhúsið menningarmiðstöð

Verkefnastjóri fræðslu og miðlunar

Sláturhúsið menningarmiðstöð auglýsir eftir starfsmanni í nýja stöðu verkefnastjóra fræðslu og miðlunar. Starfshlutfall er 50% Starfið er laust nú þegar og upphaf starfs er samkomulagsatriði.

Helstu verkefni eru að móta og hafa umsjón með fræðslustarfi stofnunarinnar, taka á móti hópum og sjá um kynningarmál stofnunarinnar.

Sláturhúsið er sviðslistamiðstöð Austurlands og á næstu árum verður unnið að frekari mótun verkefna miðstöðvarinnar, meðal annars listamannadvöl og þróunarstarfi innan sviðslista. Viðkomandi starfsmaður mun taka þátt í þeirri stefnumótun og því æskilegt að viðkomandi hafi einhverja reynslu af slíkri vinnu.

Gera má ráð fyrir að vinnutími sé stundum á kvöldin eða um helgar.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður Sláturhússins menningarmiðstöðvar

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með fræðslustarfi Sláturhússins

  • Gerð fræðsluefnis um sýningar Sláturhússins í samstarfi við listafólk.  

  • Móttaka skólahópa og annarra hópa.  

  • Umsjón með kynningarmálum Sláturhússins, þar með talið vef og samfélagmiðlum í samstarfi við forstöðumann 

  • Undirbúningur og hugmyndavinna í tengslum við BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi og seta í stýrihópi hátíðarinnar fyrir hönd Sláturhússins.  

  • Aðstoð og stuðningur við uppsetningu sýninga, undirbúning viðburða og önnur tilfallandi verkefni í Sláturhúsinu.  

  • Þáttaka í þróun og mótun verkefna Sláturhússins.  

  • Aðstoð við listafólk í vinnustofudvöl

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um grunn háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. í sviðslistum eða öðrum listgreinum, menningarmiðlun eða verkefnastjórn. 

  • Reynsla af vinnu við lista- og eða menningarstofnanir er mikilvæg. 

  • Reynsla af kynningarmálum er mikilvæg.  

  • Gott vald á íslensku og ensku er skilyrði, bæði talmáli og ritmáli.  

  • Góð almenn tölvukunnátta.  

  • Reynsla af umsóknarvinnu í innlenda sem erlenda sjóði er æskileg. 

  • Nákvæmni, samviskusemi og góð samskiptafærni. 

  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði 

  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð. 

Advertisement published18. March 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Kaupvangur 9, 700 Egilsstaðir
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Customer service
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags