VERDI Ferðaskrifstofa
VERDI Ferðaskrifstofa
VERDI Ferðaskrifstofa

Verkefnastjóri á sölu- og markaðssviði – Verdi Travel

Verdi Travel leitar að drífandi, skipulögðum og tæknilega sterkum einstaklingi til að starfa á sölu- og markaðssviði fyrirtækisins. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér sölu og tilboðsgerð fyrir hópaferðir, verkefnastjórnun, markaðssetningu og þróun nýrra viðskiptatækifæra. Sérstök áhersla verður á uppbyggingu og vöxt hópaferðadeildar Verdi Travel.

Helstu verkefni

  • Sala, skipulagning og tilboðsgerð fyrir hópaferðir og stærri verkefni.
  • Öflun nýrra viðskiptavina og þróun nýrra viðskiptatækifæra.
  • Eftirfylgni með söluverkefnum frá fyrstu fyrirspurn til framkvæmdar.
  • Hugmyndavinna og framkvæmd markaðsherferða.
  • Gerð og hönnun kynningar- og markaðsefnis.
  • Umsjón með og uppfærsla á heimasíðu og gagnagrunnum.
  • Notkun stafrænna lausna til að styðja við sölu- og markaðsstarf.
  • Þróun vinnuferla til að auka skilvirkni og árangur.

Menntunar- og hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingi með reynslu af sölu og þjónustu, góða tölvu- og tæknikunnáttu og sterka færni í Microsoft 365, sérstaklega Excel og Outlook. Kunnátta í Canva og vefumsjónarkerfum er kostur, sem og reynsla af gervigreindarlausnum.

Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður, frumkvöðull, skipulagður, nákvæmur og lausnamiðaður, með góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund. Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og reynsla af ferðaþjónustu er kostur.

Advertisement published9. October 2026
Application deadline21. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Silfursmári 6
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.AdvertisingPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Designing proceduresPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Online marketingPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.AutomationPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Business relations
Professions
Job Tags