
Norðurál
Norðurál, sem rekur álver á Grundartanga, var valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 af Samtökum atvinnulífsins. Framþróun grænnar álframleiðslu mun hafa raunveruleg áhrif á útblástur gróðurhúslofttegunda á heimsvísu. Íslenski áliðnaðurinn er ein stærsta útflutningsgrein landsins og ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs.
Álið okkar, Natur-Al, skilur eftir sig eitt minnsta kolefnisspor í heimi. Þegar litið er á ferlið í heild, frá vinnslu hráefna til afhendingar fullunninnar vöru, nemur kolefnisspor áls frá Norðuráli einungis um fjórðung af heimsmeðaltalinu. Við stefnum að því að verða fyrsta álver í heiminum sem framleiðir kolefnishlutlaust ál.
Hjá Norðuráli leggjum við áherslu á virðingu fyrir mannréttindum, samfélagi og umhverfi. Öryggi, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi og lögð er áhersla á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda.
Hjá Norðuráli starfa um 600 fastráðin, þar af 350 í vaktavinnu, 150 sérfræðingar með fjölbreytta menntun og 100 í iðnaðarstörfum. Til viðbótar eru um 150 í afleysingum.
Norðurál er ASI vottað sem staðfestir að fyrirtækið stenst ítrustu kröfur um samfélagslega ábyrgð, heiðarlega viðskiptahætti, umhverfisvænt hráefni og framleiðslu. Gæðastjórnunarkerfi Norðuráls er vottað samkvæmt alþjóðlega ISO 9001 staðlinum og umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins eru vottuð samkvæmt ISO 14001 og ISO 45001 stöðlum. Norðurál er jafnlaunavottað fyrirtæki og er handhafi gullmerkis PWC.

Vélvirki á vaktir
Norðurál leitar að áreiðanlegum vélvirkja til starfa í vaktavinnu. Unnið er á 8 tíma vöktum, dag-, kvöld- og næturvöktum (fimm daga vinna/fimm daga frí). Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Starfið heyrir undir tæknisvið fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Fyrirbyggjandi viðhald á framleiðslubúnaði
• Bilanagreining
• Endurnýjun & endurbætur á tæknibúnaði
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sveinspróf í vélvirkjun
• 2ja ára starfsreynsla sem vélvirki er skilyrði
• Bílpróf er skilyrði
• Öguð og nákvæm vinnubrögð
• Sterk öryggisvitund
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð íslenskukunnátta og almenn tölvunotkun
Advertisement published8. June 2026
Application deadline18. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Type of work
Skills
Driver's license (B)ReliabilityProactiveHuman relationsPrecisionIndependencePunctualJourneyman license
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Viðgerðarmaður
Vélavit ehf

Campervan Mechanic
Indie Campers

Stálsmiðir og Suðumenn
Stáliðjan ehf

Rafvirkjar - Rafvirkjanemar
Múltíverk ehf

Viðgerðarmaður á verkstæði
Garðlist ehf

Smíði álhurða og glugga / Alu doors, windows fabrication
Fagval

Við óskum eftir stálsmið & vélvirkum til að starfa með okkur.
Sjóstál ehf.

Járniðnaðarmaður óskast
Kerfóðrun ehf.

Starfsmenn í framleiðslu og uppsetningar
Signa ehf

Vélsmiður óskast til starfa.
Vélsmiðja Grindavíkur ehf

Vélstjóri, vélvirki, laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

Bifvélavirki óskast á vörubifreiða verkstæði Krafts
Kraftur hf.