Arna
Arna

Vélstjóri í Bolungarvík

Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík óskar eftir að ráða vélstjóra til starfa. Vélstjóri ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi tækjabúnaðar fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem áhersla er lögð á öruggan rekstur framleiðslukerfa, fyrirbyggjandi viðhald og stöðugar umbætur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegum rekstri og viðhaldi tækjabúnaðar
  • Skipulagning og framkvæmd fyrirbyggjandi viðhalds
  • Bilanagreining og viðgerðir á vélbúnaði og framleiðslulínum
  • Samvinna við framleiðslustjóra og aðra starfsmenn í framleiðslu
  • Samskipti við þjónustuaðila og verktaka
  • Skráning og eftirfylgni viðhaldsverkefna
  • Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun tæknikerfa
Menntunar- og hæfniskröfur

Vélstjóraréttindi

Reynsla af rekstri og viðhaldi vélbúnaðar í iðnaði kostur

Þekking eða reynsla af sjálfvirknikerfum og PLC-stýringum kostur

Góð hæfni í bilanagreiningu og lausnamiðuð hugsun

Góðir samskiptahæfileikar og skipulagshæfni

Sjálfstæð vinnubrögð og ábyrgð í starfi

Góð íslenskukunnátta og grunnfærni í ensku skilyrði

Advertisement published11. March 2026
Application deadline26. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Basic skills
Location
Hafnargata 80, 415 Bolungarvík
Type of work
Professions
Job Tags