Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál

Vélstjóri á víravél í steypuskála / Maintenance Technician for the Rodding Mill in the Casthous

Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum einstaklingi í starf vélstjóra á víravél í steypuskála. Vélstjórinn ber ábyrgð á daglegum rekstri, eftirliti og viðhaldi steypuvéla. Starfið felur í sér að tryggja stöðugleika, gæði og öryggi í framleiðsluferlinu, auk þess að styðja við umbótaverkefni og áreiðanleikaferli. Vélstjórinn vinnur náið með framleiðsluteymi, viðhaldssérfræðingum og öðrum teymum til að hámarka nýtingu og draga úr óskipulögðum stoppum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verksvið eða meginverkefni starfsins

  • Framkvæma stöðluð eftirlit samkvæmt gátlistum (GÁT-MÁL-ROD 203/204/205) og skrá niðurstöður.

  • Sinna smáviðgerðum og neyðarviðgerðum til að tryggja gang vélanna.

  • Skrá allar viðgerðir og athugasemdir í eAM kerfi.

  • Taka þátt í umbótaverkefnum, vöktun og greiningu á vélbúnaði.

  • Sitja á vikulegum framleiðslufundum og leggja fram tillögur að umbótum.

  • Hafa yfirsýn yfir verk á viðhaldsdögum, samræma skipulag og tryggja að verk séu kláruð.

  • Meta breytingar á plani í samvinnu við viðhaldsleiðtoga.

  • Aðstoða við skipulag og framkvæmd viðsnúnings vélarinnar.

  • Tryggja skýrar boðleiðir og hraðan viðbragðstíma í samskiptum við önnur teymi.

Ábyrgð í starfi

  • Vinna samkvæmt samþykktum ferlum og verklagsreglum.

  • Tryggja að öll verk sem snerta öryggi og heilsu séu framkvæmd, tilkynna frávik ef þau koma upp.

  • Fylgja stöðlum Alcoa og Fjarðaáls.

  • Tryggja skráningu allra viðgerða og eftirlits í eAM kerfi.

  • Samræma og styðja við framkvæmd viðhaldsstoppa og viðsnúnings.

  • Taka þátt í umbótastarfi og breytingastjórnun (VS1–VS4).

  • Virkja hjálparkeðju og kalla inn viðhaldsvakt þegar þörf krefur.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og/eða réttindi sem krafist er

Iðnmenntun (vélfræði, vélvirkjun, rafvirkjun eða sambærilegt).

Reynsla sem krafist er

A.m.k. 5 ára starfsreynsla, helst í framleiðslu eða viðhaldi.

Hæfni sem krafist er

  • Geta unnið í teymi og sýna frumkvæði.

  • Góð samskiptahæfni og skipulagshæfni.

  • Þekking á áreiðanleikaferlum og viðhaldskerfum (eAM).

  • Góð almenn tölvufærni (Excel, Word, Outlook, PowerPoint).

Fríðindi í starfi
  • Íþrótta og meðferðastyrkir
  • Mötuneyti
  • Rútur frá helstu byggðarkjörnum
Advertisement published18. February 2026
Application deadline6. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Hraun 158199, 731 Reyðarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.ElectricianPathCreated with Sketch.Industrial mechanics
Professions
Job Tags