Sjáland
Sjáland
Sjáland

Veitingastjóri á Sjálandi í Garðabæ

Vegna aukinna umsvifa leitum við að öflugum og drífandi veitingastjóra á Sjálandi í Garðabæ. Starfið felur jafnframt í sér þátttöku í öðrum spennandi verkefnum innan Múlakaffis.

Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á framúrskarandi þjónustu, nýtur þess að leiða gott teymi og vill taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu Sjálands á næstu misserum.

Um fjölbreytt og sveigjanlegt starf er að ræða og tekur vinnutími mið af starfsemi Sjálands og felur því meðal annars í sér vinnu á kvöldin og um helgar.

Sjáland er glæsilegur veitinga- og veislustaður við sjávarsíðuna í Garðabæ. Þar eru haldnir fjölbreyttir viðburðir, svo sem brúðkaup, afmæli, árshátíðir, fyrirtækjaviðburðir og jólaveislur. Sjáland er hluti af Múlakaffi, rótgrónu fjölskyldufyrirtæki og leiðandi afli á íslenskum veitingamarkaði.

Við bjóðum spennandi stjórnunarstarf, fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á áframhaldandi uppbyggingu Sjálands og Múlakaffis.

Höfum gaman saman – lífið er veisla

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

●     Stjórnun og skipulag þjónustu

●     Starfsmannahald, vaktaskipulag og þjálfun starfsfólks

●     Ábyrgð á framreiðslu og þjónustu á viðburðum

●     Virk þátttaka í sölu- og markaðsmálum

●     Innkaup, birgðahald og kostnaðareftirlit

●     Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila

Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur

●     Reynsla af þjónustu og rekstri í veitingageiranum

●     Reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi er kostur

●     Framúrskarandi þjónustulund og góð samskiptafærni

●     Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð

●     Frumkvæði, metnaður og hæfni til að leiða öflugt teymi

●     Góð íslensku- og enskukunnátta

●     Umsækjandi þarf að vera 25 ára eða eldri

Advertisement published26. August 2026
Application deadline31. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Ránargrund 4, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.WaiterPathCreated with Sketch.Event managementPathCreated with Sketch.Waitering
Professions
Job Tags