Brynja leigufélag ses.
Brynja leigufélag ses.
Brynja leigufélag ses.

VAKTMAÐUR - Sumarafleysingarstarf

Brynja leigufélag óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysingastarf sem vaktmaður í Hátúni 10 í Reykjavík. Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á tvískiptum vöktum frá kl. 08:00 til 20:00 og 20:00 til 08:00 alla daga vikunnar. Að jafnaði eru um fjórtán vaktir á hverju fjögurra vikna tímabili.

Í Hátúni 10 eru þrjú fjölbýlishús með samtals um 180 íbúðum. Húsin eru tengd með tengibyggingu þar sem fjölbreytt atvinnustarfsemi fer fram.

Leitað er að einstaklingi sem á auðvelt með mannleg samskipti og vinnur af jákvæðni og samviskusemi. Um er að ræða skemmtilegt og gefandi starf í góðu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti við íbúa, taka á móti fyrirspurnum og veita upplýsingar eftir þörfum
  • Veita íbúum og starfsfólki aðstoð samkvæmt verkáætlun og/eða beiðnum
  • Vakt- og eftirlitsstörf innan og utan hússins til að tryggja öryggi og vellíðan íbúa
  • Eftirlit með húsnæði og tæknikerfum samkvæmt verkáætlun
  • Framkvæma viðhald og ræstingu í samræmi við verkáætlun
  • Tryggja öryggi íbúa og bregðast við bráðatilvikum af skjótum og öruggum hætti
  • Skráning og skýrslugerð varðandi öryggi, atvik og framkvæmd verkefna
  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af vakt- eða öryggisstarfi er kostur
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks
  • Ábyrgðartilfinning, traust og fagmennska í störfum
  • Jákvæðni og gott viðmót í mannlegum samskiptum
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Advertisement published13. March 2026
Application deadline22. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Basic skills
Location
Hátún 10, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Punctual
Professions
Job Tags