Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Upplýsingatæknideild - Kerfisstjóri

Upplýsingatæknideild Reykjanesbæjar leitar að lausnamiðuðum og framsýnum kerfisstjóra til að styrkja öflugt og samhent teymi. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í vaxandi umhverfi þar sem tækni og þjónusta við notendur eru í öndvegi.

Reykjanesbær leggur áherslu á nútímalegt vinnuumhverfi og vinnustaðamenningu þar sem gildi okkar – virðing, eldmóður og framsækni – endurspeglast í öllu okkar starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með tölvuinnviðum og netkerfi sveitarfélagsins (Cisco, VMware, Microsoft)
  • Uppsetning, viðhald og uppfærslur á notendabúnaði
  • Notendaþjónusta og úrlausn tæknilegra vandamála
  • Þátttaka í þróunarverkefnum og innleiðingu nýrra lausna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í kerfisfræði eða skyldu tæknisviði er æskileg
  • Microsoft og/eða Cisco vottanir eru mikill kostur
  • Haldgóð þekking á Microsoft lausnum
  • Reynsla af rekstri og viðhaldi tölvukerfa
  • Frábær þjónustulund, reynsla af þjónustu og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og öguð nálgun við úrlausn verkefna í hröðu umhverfi.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Hlunnindi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published12. August 2026
Application deadline25. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Grænásbraut 910, 235 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags