Bókasafn Mosfellsbæjar
Bókasafn Mosfellsbæjar
Bókasafn Mosfellsbæjar

Umsjónarmaður barnastarfs í bókasafni

Viltu kynna æsku Mosfellsbæjar fyrir undraheimi bókanna?

Bókasafn Mosfellsbæjar óskar eftir að ráða hugmyndaríkan og skapandi starfsmann

Bókasafn Mosfellsbæjar starfar samkvæmt lögum um almenningsbókasöfn frá 2012 og stefnu bæjarins í menningarmálum. Bókasafnið þjónustar einstaklinga og stofnanir í Mosfellsbæ og stendur fyrir fjölbreyttum menningarviðburðum. Góð samvinna er milli bókasafnsins og leik- og grunnskóla bæjarins.

Í starfinu felst umsjón með barnastarfi og safnkennslu nemenda, auk þess afgreiðsla, frágangur og önnur tilfallandi verkefni.

Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjón með safnkynningum og sögustundum fyrir börn

Skipulagning og framkvæmd viðburða fyrir börn og ungmenni

Þjónusta við lánþega safnsins og upplýsingagjöf

Þátttaka í vinnu í tengslum við viðburði á safni

Önnur verkefni sem forstöðumaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

· Háskólapróf sem nýtist í starfi

· Áhugi á og reynsla af starfi með börnum

· Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður

· Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

· Góð tölvukunnátta

· Góð íslenskukunnátta

· Reynsla af útlánakerfi Gegnis er kostur

Advertisement published1. July 2026
Application deadline16. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Type of work
Professions
Job Tags