HS Orka
HS Orka
HS Orka

Umhirða og þrif

HS Orka leitar að samviskusömum og öflugum einstaklingi til að sinna umhirðu og þrifum í virkjunum og á tengdum svæðum fyrirtækisins. Starfið er að mestu við Reykjanesvirkjun, en viðkomandi mun einnig sinna verkefnum í Svartsengi og á öðrum starfsstöðvum HS Orku eftir þörfum.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur ánægju af því að hafa hlutina í góðu lagi, vinnur sjálfstætt og leggur metnað í snyrtilegt og öruggt starfsumhverfi. Virkjanaumhverfið gerir ríkar kröfur til öryggis og að farið sé eftir viðeigandi verkferlum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þrif og umhirða í orkuverum, stöðvarhúsum og öðrum tæknirýmum
  • Umhirða á svæðum í og við virkjanir og tengd mannvirki
  • Umsjón með vörum, áhöldum og búnaði sem tengist starfinu
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sýnir samviskusemi og áreiðanleika og vinnur sjálfstætt
  • Hefur gott auga fyrir snyrtimennsku og sýnir frumkvæði
  • Sýnir jákvæðni og verklagni og á auðvelt með samskipti og samvinnu
  • Er tilbúinn til starfa í virkjanaumhverfi þar sem öryggi er ávallt í fyrirrúmi

Frekari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri, [email protected].

Advertisement published19. November 2026
Application deadline6. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Orkubraut 1, 240 Grindavík
Type of work
Professions
Job Tags