

Tónlistarstjóri Óperunnar
Óperan auglýsir lausa til umsóknar stöðu tónlistarstjóra. Um er að ræða fullt starf sem felur í sér þátttöku í uppbyggingu nýrrar óperustofnunar og í þróun öflugs, faglegs óperustarfs á Íslandi. Tónlistarstjóri ber ábyrgð á helstu tónlistarþáttum starfseminnar í nánu samstarfi við óperustjóra og aðra lykilstarfsmenn og tekur þátt í mótun dagskrár. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og kallar á víðtæka tónlistarlega kunnáttu. Laun eru samkvæmt viðeigandi kjarasamningi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með tónlistarþætti óperuverkefna og söngþjálfun einsöngvara
- Stjórnun kórs/hljómsveitar á æfingum/sýningum
- Þátttaka í áheyrnarprufum og skipulag þeirra
- Skipulagning og samhæfing tónlistaræfinga
- Vinna með gestastjórnendum, aðstoða þá eftir þörfum og geta leyst af ef aðstæður krefja
- Tækifæri til að stjórna ýmsum uppfærslum og verkefnum
- Getur leyst repetitör af eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tónlist
- Reynsla af starfi í óperuhúsi sem repetitör, aðstoðarhljómsveitarstjóri eða annað sambærilegt
- Góð þekking á söngröddinni og óperubókmenntum, reynsla af samstarfi við söngvara og hæfni til að leiða tónlistarstarf
- Góð hæfni til skipulags- og áætlanagerðar
- Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni er mikilvæg
Fríðindi í starfi
- Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar
Advertisement published19. February 2026
Application deadline5. March 2026
Language skills
EnglishRequired
Location
Hverfisgata 19, 101 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Starfsmaður í framleiðslu óskast
Málmsteypan

Skrifstofustarf.Tölvukunnátta,Skipulag og Gagnafærsla í Excel. Payday og Monday, Hlutastarf
Next Level Smíði ehf.

Lagerstjóri
Hreint ehf

Uppsetninga - og þjónustusérfræðingur hurða
Héðinshurðir ehf

Lager og framleiðslustarf - Sumarstarf
Bústólpi ehf

Framleiðsla og flotastýring
Steinsteypan

Framleiðsla og útkeyrsla / Production and driving
Brauð & co.

Starfsmaður í merkingar óskast
Myndform ehf

Starfsmaður í þrif og ræstingar
Húnabyggð

Starfsmaður í Þjónustumiðstöð
Húnabyggð

Deildarstjóri verkefnastjórnunar
Umhverfis- og skipulagssvið

Söluráðgjafi tækja
Lífland ehf.