

Tómstundaleiðbeinandi - Dalurinn Engidalsskóla
Félagsmiðstöðin Dalurinn í Engidalsskóla býður börnum í 5. -7.bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni barnalýðræðis og anda forvarna. Dalurinn er vettvangur fyrir opið félagsstarf og skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með börnum.
Markmið með starfinu er að skapa vettvang þar sem börn fá tækifæri til að efla sjálfstraust sitt og félagsfærni með því að axla ábyrgð og sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Starfið er tímavinna þrjá daga í viku frá kl. 16-18 eða 17-19 og hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Tekur þátt í skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
· Samskipti og samvinna við börn
· Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
· Stuðningu við frumkvæði barna, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
· Önnur verkefni skv. Starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
· Reynsla af starfi með börnum og unglingum
· Íslenskukunnátta
· Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
· Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
· Almenn tölvukunnátta
· Góð íslenskukunnátta, hæfni C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnheiður Guðmundsóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í gegnum netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2026.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Icelandic

















