Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Tómstundaleiðbeinandi - Aldan - Öldutúnsskóli

Öldutúnsskóli auglýsir eftir tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Ölduna

Langar þig að vinna með börnum og unglingum í skapandi og skemmtilegu umhverfi?

Við í Öldutúnsskóla leitum að drífandi, jákvæðum og kraftmiklum tómstundaleiðbeinanda til starfa í félagsmiðstöðinni Öldunni.

Í Öldutúnsskóla eru um 580 nemendur í 1.–10. bekk og leggjum við áherslu á virðingu, virkni og vellíðan í öllu skólastarfi.

Félagsmiðstöðin Aldan býður nemendum í 5.–10. bekk upp á fjölbreytt og metnaðarfullt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur. Starfið byggir á unglingalýðræði, virkri þátttöku og öflugu forvarnastarfi. Þar fá börn og unglingar tækifæri til að taka þátt í opnu félagsstarfi, skipulagðri dagskrá, hópastarfi og fjölbreyttum viðburðum sem mótaðir eru í samstarfi þeirra og starfsfólks.

Starfið hentar sérstaklega vel fyrir skólafólk eða einstaklinga sem leita að fjölbreyttu og gefandi aukastarfi með börnum og unglingum.

Helstu verkefni

  • Taka þátt í að skipuleggja og þróa fjölbreytta dagskrá í samstarfi við stjórnendur, samstarfsfólk og ungmenni.
  • Eiga í góðum og virkum samskiptum við börn og unglinga og hvetja þau til þátttöku.
  • Stuðla að jákvæðu, öruggu og uppbyggilegu félagslegu umhverfi sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum.
  • Styðja við frumkvæði, félagsfærni og vellíðan barna og unglinga.
  • Sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu tómstundaleiðbeinanda.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum er kostur.
  • Frumkvæði, jákvætt viðmót og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Góð skipulagshæfni og stundvísi.
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi með börnum og unglingum.
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta. Gerð er krafa um hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
  • Hreint sakavottorð er skilyrði.

Nánari upplýsingar veita:

Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri

Sími: 664 5894

Netfang: [email protected]

Kristján Hans Óskarsson, deildarstjóri

Sími: 664 5712

Netfang: [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 4. september

Ferilskrá skal fylgja umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published26. August 2026
Application deadline4. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Öldutún 9, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags