Sveitarfélagið Strandabyggð
Sveitarfélagið Strandabyggð
Sveitarfélagið Strandabyggð

Tómstundafulltrúi og framkvæmdastjóri HSS

Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar starf tómstundafulltrúa Strandabyggðar og framkvæmdastjóra Héraðssambands Strandamanna (HSS) í 100% starfshlutfalli.

Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem felur í sér faglega umsjón með tómstunda- og æskulýðsmálum sveitarfélagsins og daglega umsýslu og framkvæmd verkefna HSS í nánu samstarfi við stjórn sambandsins, íþróttafélög og aðra samstarfsaðila. Starfið veitir tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á íþrótta- og tómstundastarf fyrir alla aldurshópa í sveitarfélaginu og á svæðinu.

Tómstundafulltrúi er næsti yfirmaður starfsfólks á sviði tómstundastarfs og ber ábyrgð á að starfsemin sé í samræmi við fjárheimildir sveitarfélagsins. Framkvæmdastjóri HSS sér um daglegan rekstur sambandsins og framkvæmd viðburða þess. Æðsti yfirmaður er sveitarstjóri Strandabyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með tómstunda-, forvarnar- og æskulýðsmálum sveitarfélagsins
  • Skipulag og þróun frístundastarfs, m.a. félagsmiðstöðvar og sumarnámskeiða
  • Stuðningur við íþrótta- og félagasamtök og samstarf við skóla og íþróttamannvirki
  • Dagleg umsýsla og samskipti vegna starfsemi HSS
  • Skipulag og framkvæmd móta og viðburða á vegum HSS
  • Samskipti við aðildarfélög, UMFÍ, ÍSÍ og sérsambönd
  • Umsjón með kynningu, upplýsingamiðlun og fundarstarfi
  • Önnur verkefni á þessu sviði sem viðkomandi er falið af sveitarstjórn eða sveitarstjóra eða stjórn HSS
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða starfsreynsla sem nýtist í starfi t.d á sviði tómstunda- og félagsmálafræði eða kennslu
  • Reynsla af skipulagningu og verkefnastjórnun er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni
  • Leiðtogahæfileikar, þjónustulund og góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð íslenskukunnátta og almenn tölvufærni
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published12. March 2026
Application deadline27. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Brunngata 2, 510 Hólmavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags