
Rótgróið upplýsingatæknifyrirtæki
Við erum lítið og samheldið upplýsingatæknifyrirtæki í Reykjavík með yfir tveggja áratuga reynslu. Við sjáum um tölvukerfi fyrirtækja og stofnana frá A til Ö: skýjaþjónustur, notendaumsjón, afritun, vöktun og netöryggi. Á annað hundrað fyrirtækja treysta okkur fyrir rekstrinum og hópurinn stækkar ár frá ári.
Hjá okkur kynnist þú fjölbreyttum kerfum og ólíkum verkefnum og sérð árangur vinnunnar strax. Boðleiðir eru stuttar, ákvarðanir teknar hratt og hver og einn hefur raunveruleg áhrif.
Við nýtum gervigreind markvisst í daglegu starfi, í greiningu, skjölun og sjálfvirkni. Við leitum að fólki sem hefur gaman af nýrri tækni og vill læra eitthvað nýtt á hverjum degi.

Tæknimanneskja óskast
Rótgróið upplýsingatæknifyrirtæki í Reykjavík leitar að jákvæðri og lausnamiðaðri tæknimanneskju í fullt starf. Hjá okkur færðu fjölbreytt verkefni hjá fjölda fyrirtækja og stofnana, lærir stöðugt eitthvað nýtt og nýtir gervigreind í daglegum störfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Notendaþjónusta og tæknileg aðstoð, bæði í fjarþjónustu og á staðnum
- Umsjón og rekstur Microsoft 365 og Google Workspace
- Uppsetning og frágangur útstöðva, jaðartækja og nettenginga
- Bilanaleit í vélbúnaði, hugbúnaði og netkerfum
- Afritun, vöktun og netöryggi
- Rekstur hýsingar í skýinu
- Skráning verka og skjölun kerfa
- Innleiðing gervigreindarlausna með viðskiptavinum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð þekking á Microsoft 365 og Windows
- Reynsla af notendaþjónustu eða rekstri tölvukerfa
- Skilningur á netkerfum, s.s. IP-tölum, beinum og eldveggjum
- Jákvætt viðhorf til gervigreindar; færni í notkun gervigreindarverkfæra er sterkur kostur
- Þekking á Google Workspace, skýjahýsingu, IP-símkerfum og netöryggislausnum er kostur
- Vottanir á sviði upplýsingatækni eru kostur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og nákvæmni í skráningu
- Lipurð í samskiptum og einlægur vilji til að leysa mál
- Góð íslenskukunnátta og bílpróf
Fríðindi í starfi
- Fullt starf kl. 9-17 með möguleika á aukavinnu
- Fjölbreytt verkefni þar sem enginn dagur er eins
- Stuðningur við nám og vottanir
- Tækifæri til að móta starfið og vaxa með fyrirtækinu
- Gott vinnuumhverfi í Reykjavík
Advertisement published27. October 2026
Application deadline12. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Reykjavík, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
Artificial intelligenceMicrosoft 365AutomationComputer security
Professions
Job Tags




