Stíflutækni
Stíflutækni
Stíflutækni

Tæknimaður við myndun fráveitulagna

Stíflutækni

Vegna aukinna verkefna leitum við að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa við myndun og ástandsskoðun fráveitulagna með sérútbúnum myndavélabíl.

Helstu verkefni:

  • Myndun og ástandsskoðun fráveitulagna með sérhæfðum myndavélabúnaði.

  • Greining á ástandi lagna og skráning frávika.

  • Úrvinnsla myndgagna og skýrslugerð.

  • Umsjón og dagleg umhirða myndavélabíls og búnaðar.

  • Önnur verkefni tengd lagnaskoðun og fráveituþjónustu.

Hæfniskröfur:

  • Góð tæknikunnátta og áhugi á tækjabúnaði.

  • Góð almenn tölvukunnátta.

  • Sjálfstæð, nákvæm og skipulögð vinnubrögð.

  • Bílpróf er skilyrði.

  • Stundvísi, áreiðanleiki og góð samskiptahæfni.

  • Reynsla af lagnamyndun eða lagnavinnu er kostur en ekki skilyrði.

Við bjóðum:

  • Fjölbreytt og spennandi starf.

  • Vinnu með fullkomnum og sérhæfðum tækjabúnaði.

  • Þjálfun og tækifæri til að öðlast sérþekkingu.

  • Góðan starfsanda og framtíðarstarf hjá öflugu fyrirtæki.

Umsóknir og ferilskrár sendist á [email protected].

Þörf er að viðkomandi tali og skrifi á íslensku.

It's necessery to know how to speak and write Icelandic.

Helstu verkefni og ábyrgð

Myndun fráveitulagna

Menntunar- og hæfniskröfur

Almenn þekking á tölvum.

Advertisement published4. November 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Brúarfljót 5, 270 Mosfellsbær
Type of work
Professions
Job Tags