Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja er framsækið þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á nýjum og notuðum bifreiðum frá Mercedes-Benz, Kia og Honda ásamt þjónustu og viðhaldi fyrir viðskiptavini Öskju, bæði til einstaklinga og fyrirtækja.
Við vitum að eitt mesta virði okkar felst í góðum mannauð.
Hjá Öskju starfar samheldin og fjölbreyttur hópur sem býr yfir brennandi áhuga í sínu fagi, framúrskarandi þjónustulund og metnaði til ná árangri. Askja býður upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir starfsfólk, eitt fullkomnasta bifreiðaverkstæði landsins, glæsilega sýningarsali og varahlutaþjónustu.
Lögð er sérstök áhersla á að skapa menningu sem einkennist af gleði, samvinnu og sveigjanleika. Markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina með því að veita starfsfólki stuðning og skapa því umhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku og heiðarleika.
Askja er staðsett á Krókhálsi 7-13 í þremur húsnæðum. Askja notaðir bílar eru á Krókhálsi 7 þar sem við bjóðum upp á úrval notaðra bíla frá öllum bílaframleiðendum. Sýningarsalur Mercedes-Benz er á Krókhálsi 11 ásamt höfuðstöðvum Öskju og skrifstofu og svo sýningarsalur Kia og Honda á Krókhálsi 13.
Tímabundið starf við þrif á notuðum bílum
Askja óskar eftir að ráða starfsfólk tímabundið í hluta/aukastörf við þrif á notuðum bílum. Unnið er frá kl 17:00-22:00 öll virk kvöld og einnig eitthvað um helgar.
Við óskum eftir að ráða fólk sem hefur einhverja reynslu af bílaþrifum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni
- Frumkvæði í starfi
- Góð íslensku- eða enskukunnátta
- Vandvirkni, metnaður og dugnaður
- Heiðarleiki og stundvísi
- Gilt bílpróf
Advertisement published3. February 2025
Application deadline7. February 2025
Language skills
English
Very goodRequired
Icelandic
Very goodRequired
Location
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactiveHonestyHuman relationsAmbitionPunctualMeticulousness
Professions
Job Tags
Other jobs (2)