Vélrás
Vélrás
Vélrás

Þjónustustjóri tjónadeildar - CABAS og ábyrgðarmál

Þjónustustjóri tjónadeildar – Cabas og ábyrgðarmál

Vélrás leitar að öflugum og skipulögðum þjónustustjóra til að leiða og halda utan um tjónadeild fyrirtækisins.

Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf þar sem viðkomandi verður í lykilhlutverki í samskiptum við viðskiptavini, tryggingafélög og erlenda framleiðendur atvinnubifreiða.

Vélrás rekur eitt stærsta verkstæði landsins og sinnir fjölbreyttum viðgerðum og þjónustu við atvinnubifreiðar, rútur, eftirvagna og vinnuvélar. Fyrirtækið annast jafnframt tjónaviðgerðir fyrir tryggingafélög og ábyrgðarviðgerðir fyrir ýmsa erlenda framleiðendur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með tjónamálum og gerð tjónamata í CABAS og CABAS Heavy
  • Samskipti og eftirfylgni með tryggingafélögum vegna tjónaviðgerða
  • Eftirfylgni með ábyrgðarmálum og ábyrgðarviðgerðum
  • Samskipti við erlenda framleiðendur vegna ábyrgðarkrafna og tæknilegra mála
  • Gerð, skráning og eftirfylgni ábyrgðarkrafna gagnvart framleiðendum
  • Öflun og utanumhald gagna vegna ábyrgðarmála, s.s. verkbeiðna, mynda, tímaskráninga og varahlutanotkunar
  • Eftirfylgni með samþykktum og uppgjöri ábyrgðarkrafna
  • Skipulagning viðgerða í samstarfi við verkstæðisformenn og aðra stjórnendur
  • Eftirfylgni með framgangi verka og upplýsingagjöf til viðskiptavina
  • Þátttaka í þróun og stöðlun verkferla tengdum tjóna- og ábyrgðarmálum
  • Önnur verkefni tengd þjónustu og rekstri verkstæða

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla úr bifreiða-, véla- eða verkstæðisgeiranum
  • Þekking á tjónaviðgerðum og/eða ábyrgðarmálum er mikill kostur
  • Reynsla af CABAS eða sambærilegum tjónamatskerfum
  • Tæknilegur skilningur á atvinnubifreiðum og viðgerðum er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi
  • Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Rík þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Frumkvæði og metnaður til að þróa og bæta verklag

Um starfið

Starfið hentar einstaklingi sem hefur góða tæknilega innsýn, nýtur þess að halda utan um fjölbreytt verkefni og er öruggur í samskiptum við bæði innlenda og erlenda samstarfsaðila.

Viðkomandi fær tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu tjóna- og ábyrgðarþjónustu Vélrásar og vinna náið með stjórnendum, verkstæðisformönnum, tæknimönnum, tryggingafélögum og erlendum framleiðendum.

Hjá Vélrás starfa um 100 starfsmenn á tveimur starfsstöðvum, að Álhellu 4 í Hafnarfirði og Klettagörðum 12 í Reykjavík.

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Advertisement published13. August 2026
Application deadline15. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Álhella 4, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Autobody buildingPathCreated with Sketch.Auto paintingPathCreated with Sketch.Auto repairsPathCreated with Sketch.TinsmithingPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.WeldingPathCreated with Sketch.Metal turningPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Steel constructionPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags