Hreyfing
Hreyfing
Hreyfing

Þjónustustjóri

Hreyfing leitar að metnaðarfullum einstakling í hlutverk þjónustustjóra móttöku og spa.

Þjónustustjóri ber ábyrgð á rekstri móttöku og spa. Þjónustustjóri leiðir sölu og þjónustu, er fyrirmynd síns teymis og leggur metnað í að halda uppi árangursríkum liðsanda og fagmennsku.

Öflugur þjónustustjóri gegnir lykilhlutverki í því að skapa hlýlegt og faglegt umhverfi og tekur þátt í því að þróa áfram heilsurækt sem státar af gæðum og einstakri upplifun.

Eiginleikar sem við leitum eftir:

  • Reynsla af leiðtogahlutverki í þjónustu, t.a.m. úr veitinga- eða verslunarstarfsemi

  • Framúrskarandi samskiptafærni og geta til þess að leiða lið

  • Gott auga fyrir tækifærum til þess að gera betur og frumkvæði til að fylgja þeim eftir

  • Ástríða fyrir heilbrigðu líferni og löngun til þess að sjá aðra vaxa

Helstu verkefni:

  • Umsjón með daglegum rekstri móttöku og spa

  • Leiðsögn og stuðningur við starfsfólk, auk umsjónar með vöktum starfsfólks

  • Þjálfun nýrra starfsmanna og eftirfylgni með gæðum þjónustu

  • Virk þátttaka í framúrskarandi þjónustu við meðlimi Hreyfingar

Advertisement published27. June 2025
Application deadline13. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Álfheimar 74, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags