
Þjónustuhönnuður
Viltu hanna framtíðarþjónustu borgarinnar?
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að metnaðarfullum þjónustuhönnuði í tímabundið starf til eins árs. Markmið starfsins er að hanna og bæta þjónustu borgarinnar með því að setja notendur í fyrsta sæti.
Reykjavíkurborg er einn stærsti og fjölbreyttasti þjónustuveitandi landsins. Þjónustuhönnuðir gegna lykilhlutverki í umbreytingu á þjónustu borgarinnar og taka þátt í að hanna þjónustur sem snerta líf allra borgarbúa. Unnið er í þverfaglegum teymum þar sem lögð er rík áhersla á öflugt teymisstarf, skapandi hugsun og notendamiðaða nálgun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sem þjónustuhönnuður munt þú ...
- Taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að stafrænni vegferð borgarinnar, styðja við nýsköpun og bæta þjónustu við íbúa og starfsfólk.
- Vera hluti af teymi þjónustuhönnunar sem vinnur náið með vöruhönnuðum, notendarannsakendum, textasmiðum og forriturum.
- Framkvæma notendarannsóknir með fjölbreyttum hópi notenda.
- Vinna með eigindleg og megindleg gögn, setja þau í samhengi og gera skiljanleg fyrir helstu hagaðila.
- Hanna og leiða vinnustofur til að dýpka skilning á upplifun íbúa og kortleggja þjónustuveitingu innan borgarinnar.
- Búa til frumgerðir af nýjum lausnum og prófa þær með notendum.
- Taka þátt í að innleiða nýjar þjónustur.
- Vera boðberi skapandi hugsunar og aðferðarfræði þjónustuhönnunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla og hæfni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á aðferðarfræði þjónustuhönnunar (e. service design) og geta til að nýta þá þekkingu í starfi
- Reynsla af því að hanna og leiða vinnustofur
- Hæfni til greiningar og miðlunar á gögnum
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla og hæfni til að vinna í teymi
- Geta til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og á ensku
Aðrir góðir kostir
- Fútt og sköpunarkraftur
- Þekking á vinnuumhverfi hugbúnaðarþróunar
- Drifkraftur, frumkvæði og metnaður
- Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Fríðindi í starfi
Við bjóðum upp á
- Great place to work vottaðan vinnustað
- Regnbogavottaðan vinnustaður
- Tækifæri til að móta og þróa starfið
- 36 stunda vinnuviku
- Sveigjanleika á vinnutíma
- Heilsu - og samgöngustyrk
- Sundkort og menningakort
Advertisement published27. March 2025
Application deadline10. April 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)