
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni
Systurfyrirtækin Eirberg og Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf.
Eirberg ehf. er framsækið verslunar-, innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem hefur á að skipa þjónustumiðuðu starfsfólki. Markmið okkar eru að auka lífsgæði, efla heilsu, auðvelda störf og daglegt líf.
Verslun okkar hefur nokkra sérstöðu hvað vöruval og gæði snerta þar sem góð upplifun viðskiptavina er okkur mikilvæg.
- Við berum umhyggju fyrir vellíðan viðskiptavina okkar, hlustum og veitum góða þjónustu.
- Við njótum þess að mæta þörfum viðskiptavina okkar með góðri ráðgjöf og leggjum okkur fram við að hjálpa fólki að auka lífsgæði sín.
- Við mætum hverjum og einum viðskiptavini þar sem hann er og finnum í sameiningu leiðir sem gera viðskiptavininum kleift að njóta sín og eigin heilsu.
Systurfyrirækið Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. býður m.a. hjálpartæki, hjólastóla, heilbrigðisvörur og faglega ráðgjöf.
Þar starfa hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi og aðrir sérfræðingar í velferðartækni. Markmiðin eru að auðvelda fólki daglegt líf, styðja einstaklinga til sjálfshjálpar, auka vinnuvernd og hagræði.
Stuðlaberg er með samninga við Sjúkratryggingar Íslands m.a. um:
• Bað- og salernishjálpartæki
• Barna- og hjúkrunarrúm
• Gönguhjálpartæki
• Hjólastóla og hjálparmótora
• Viðgerðarþjónustu hjálpartækja
Stuðlaberg er með rammasamning við Fjársýslu Ríkisins m.a. um:
• Rafknúin Hjúkrunar- og Sjúkrarúm
• Náttborð
• Rúmgálga og Hliðarstuðning
• Flutningsbretti og Snúningsdiska
• Flutningssegl og Lyftara
• Loftfest lyftukerfi
• Sturtustóla
• Upphækkun á salerni
• Bekken og Þvagflöskur
• Göngugrindur
• Hjólastóla
• Hnakkastóla á hjólum
• Lyftihægindastóla
• Blöðruskanna og Lífsmarkamæla
• Krómvagna og Stálborð
• Rusla- og Taugrindur
• Tölvu- og Lyfjavagna
Söluráðgjöf Stuðlabergs á sviði stóma- og þvagleggja er sú viðamesta hér á landi og er í höndum hjúkrunarfræðinga sem hlotið hafa sérþjálfun framleiðenda. Veitt er persónuleg aðstoð við að finna hentugar vörur á þessu sviði.

Þjónustufulltrúi - vöruhús og verkstæði
Óskum eftir að ráða starfsmann í vöruhús okkar að Stórhöfða 25.
Um er að ræða framtíðarstarf. Vinnutími er virka daga öllu jöfnu frá 8-16.
Eirberg ehf. er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem hefur stutt við bætta heilsu viðskiptavina sinna í 25 ár. Markmið okkar eru að efla heilsu, auka lífsgæði, auðvelda störf og daglegt líf.
Áhugasamir sem uppfylla neðangreind skilyrði eru hvattir til að senda umsókn með starfsferilsskrá og mynd. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vakin er athygli á því að Eirberg er reyklaus vinnustaður.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vörumóttaka og afgreiðsla
- Tiltekt og afgreiðslu
- Þjónustu við verslanir Eirbergs
- Vöruframstillingar og áfyllingar
- Auk annarra tilfallandi verkefna í samráði við lagerstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af lager- eða þjónustustörfum æskileg
- Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Starfsmaður sé kurteis og jákvæður
- Stundvísi, almenn hreysti og reglusemi eru áskilin
- Góð íslenskukunnátta og hreint sakavottorð eru skilyrði
Advertisement published14. September 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
Location
Stórhöfði 25, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
Customer checkoutPositivityPhysical fitnessNon smokerPunctualCustomer service
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Þjónustufulltrúi
Efling stéttarfélag

Bókavörður á bókasafni Hafnarfjarðarbæjar
Hafnarfjarðarbær

Core Heildsala óskar eftir hörkuduglegum starfsmanni á lager
Core Ehf

Sendibílstjóri og lagerstarfsmaður / Driver and warehouse employee
Útilíf

Óskum eftir starfsmanni á lager & frystir fyrirtækisins
Esja Gæðafæði

Starfsmaður í vöruhúsi í Garðabæ
DHL Express Iceland ehf

Bílstjóri á dagrútu DHL í Garðabæ
DHL Express Iceland ehf

Skrifstofumaður í móttöku meinafræðideildar
Landspítali

Fulltrúi í tiltekt og pökkun pantana - Fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Verkstæðismóttaka
Toyota

Þjónustufulltrúi (tímabundið starf)
Dropp

Starfsmaður í verslun og lager - 3D Verk
3D Verk ehf.