Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í íbúðakjarna í laugardal

Teymisstjóri óskast til starfa í íbúðakjarnann Austurbrún 6a, fyrir einstaklinga með þroskahömlun og skyldar raskanir. Um vaktavinnu er að ræða þ.e. dag.- kvöld.- nætur.- og önnur hver helgi. Starfshlutfall 100% sem skiptist í 50% vaktir og 50% stjórnun/undirbúningur

Um tímabundna ráðningu er að ræða, í ár með möguleika á framlengingu

við óskum eftir framsýnum og metnaðarfullum teymisstjóra til starfa í búsetukjarna fyrir ungt fólk með þroskahömlun og skyldar raskanir. Um er að ræða 100% starf, þar sem unnar eru dagvaktir, kvöldvaktir og önnur hver helgi. Gert er ráð fyrir að helmingi tímans sé ráðstafað í fag- og/eða undirbúningsvinnu. Þjónustan miðar að því að efla færni, auka sjálfstæði og lífsgæði íbúa. Í Austurbrún er veitt einstaklingsbundin þjónusta. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf. Í Austurbrún er mjög góður starfsandi og þar starfar samheldinn og jákvæður hópur fólks með fjölbreytta menntun og þekkingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber faglega ábyrgð og hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa í sínu teymi. Stýrir daglegum störfum annarra starfsmanna í samráði við forstöðumann. 
  • Veitir leiðsögn og tekur virkan þátt í þróunar- og uppbyggingarvinnu varðandi faglegt starf. 
  • Gerir einstaklingsáætlanir í samvinnu við íbúa, starfsmenn og forstöðumann. 
  • Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. 
  • Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni. Leiðbeinir og aðstoðar við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg störf. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags- heilbrigðis- og/eða menntavísinda
  • Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum  
  • Reynsla af stjórnun æskileg 
  • Góð þekking á einhverfu
  • Góð þekking á táknmáli og tákni með tali
  • Afburðahæfni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum 
  • Góð tölvukunnátta 
  • Íslenskukunnátta C1 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma) 
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar 
Advertisement published21. January 2026
Application deadline1. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Positivity
Professions
Job Tags