

Teymisstjóri í dagdvölinni Árblik og dagþjálfuninni Vinaminni
Dagdvölin Árblik og dagþjálfunin Vinaminni leitar eftir öflugum teymisstjóra í dagdvöl og dagþjálfun. Árblik er almenn dagdvöl fyrir eldri borgara og Vinaminni er sértæk dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun. Unnið er alla virka daga, frí um helgar og rauða daga. Teymisstjóri í dagdvöl og dagþjálfun starfar samkvæmt lögum og reglugerð sem við eiga og samkvæmt stefnu Sveitarfélagsins Árborgar.
Um er að ræða 100% starf og reiknað með að umsækjandi geti hafið störf sem allra fyrst.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
-
Dagleg verkstjórn í samráði við forstöðumann.
-
Tekur þátt í þróun og eftirfylgni verkferla innan dagdvala.
-
Leiðsögn til starfsfólks og stuðningur við öruggt vinnuumhverfi.
-
Ber ábyrgð á dagskipulagi annarra starfsmanna.
-
Fylgjast með líðan, færni og þörfum þjónustunotenda og bregðast við breytingum.
-
Stuðla að virkni, sjálfstæði og reisn þjónustunotenda í daglegu lífi.
-
Frumkvæði að þjálfun og vinnu með þjónustunotendum.
-
Ber ábyrgð á að ólíkum þörfum þjónustunotenda sé mætt á viðeigandi hátt.
-
Samskipti við aðstandendur, fagfólk og ferðaþjónustu.
-
Ber ábyrgð á biðlistum og móttöku nýrra þjónustunotenda og aðstandendum.
-
Skipulagning og forgangsröðun verkefna í samráði við forstöðumann.
-
Félagsliðamenntun.
-
Reynsla af teymisstjórn skilyrði.
-
Reynsla af starfi með öldruðum og einstaklingum með heilabilun og færni til að koma á móts við ólíkar þarfir þeirra skilyrði.
-
Þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum áskilin.
-
Fagleg vinnubrögð og færni í að skipuleggja verkefni á faglegan hátt skilyrði.
-
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð skilyrði.
-
Góð tölvukunnátta áskilin.
-
Íslenskukunnátta skilyrði.
-
Þekking á Sharepoint, Dala Care kostur.
-
Þekking á hugmyndafræðinni þjónandi leiðsögn, einstaklings- og persónumiðaðri þjónustu kostur.
Icelandic










