
TDK Foil Iceland ehf
TDK Foil Iceland ehf er alþjóðlegt fyrirtæki sem framleiðir aflþynnur fyrir rafþétta sem notaðir eru í raftæki.

TDK Foil Iceland ehf óskar eftir að ráða Rafmagnsverkfræðing
TDK Foil Iceland leitar að öflugum sérfræðingi til að leiða og þróa verkefni á sviði orkunýtingar og hagræðingar í framleiðsluferlum.
Um er að ræða spennandi framtíðarstarf þar sem verkfræðiþekking, gagnagreining og ný tækni á borð við gervigreind koma saman til að stuðla að sjálfbærari og skilvirkari framleiðslu. Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á að greina flókin framleiðsluferli, finna tækifæri til umbóta og leiða verkefni sem skila raunverulegum árangri í orkusparnaði.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greina og bæta orkunýtingu í framleiðsluferlum.
- Safna og greina framleiðslu- og orkugögn.
- Leiða umbóta- og þróunarverkefni.
- Innleiða gagnadrifnar lausnir og stuðla að sjálfbærni.
- Samstarf við þverfagleg teymi innan fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í rafmagnsverkfræði eða sambærilega menntun.
- Reynslu af ferlagreiningu, orkumálum eða framleiðsluumhverfi.
- Reynslu af gagnagreiningu, t.d. í Excel, Python, MATLAB eða sambærilegum verkfærum.
- Góða verkefnastjórnunarhæfni og getu til að vinna í þverfaglegu teymi.
- Þekking á stýrikerfum, PLC, MES kerfum eða sambærilegum lausnum.
- Gott vald á ensku í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegismatur.
- Öflugt starfsmannafélag
Advertisement published26. October 2026
Application deadline10. November 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Krossanes 4, 603 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Upplýsingatæknisérfræðingur (iðnstýringar)
Alcoa Fjarðaál

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Sérfræðingur við vega-, gatna- og stígahönnun
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Efnaverkfræðingur á sviði umhverfisráðgjafar
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Instrumentation, Controls & Power Electronics Role
Hydram Dynamics

Physics modelling of thermodynamics and heat transfer
Hydram Dynamics

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál