Vesturmiðstöð
Vesturmiðstöð

Talmeinafræðingur

Skóla- og frístundadeild Vesturmiðstöðvar auglýsir laust til umsóknar starf talmeinafræðings við grunnskóla.

Talmeinafræðingar starfa samkvæmt menntastefnu Reykjavíkurborgar „Látum draumana rætast“ og stefnu um skóla án aðgreiningar. Talmeinafræðingar, í samstarfi við annað starfsfólk, taka þátt í að efla málþroska og læsi nemenda með árangur í námi að leiðarljósi. Starfsstöð er í skóla- og frístundadeild Vesturmiðstöðvar í Borgartúni 12-14 en starfið fer að stórum hluta til fram í grunnskólum í vesturhluta borgarinnar, þ.e í Miðborg, Vesturbæ og Hlíðum.

Vesturmiðstöð er ein fjögurra þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar, þar starfar öflugur þverfaglegur hópur sérfræðinga í málefnum barna og ungmenna.

Um er að ræða fullt starf en ráðið verður frá 15. ágúst 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greina talmeina og málþroskavanda barna með áherslu á áætlanagerð og eftirfylgd til starfsfólks, skóla og foreldra ásamt talþjálfun eftir atvikum.
  • Þátttaka í teymisvinnu með starfsfólki grunnskóla og að veita ráðgjöfum viðeigandi úrræði vegna málhljóða- og málþroskaraskanna auk annarra talmeina.
  • Samstarf við þjónustuveitendur sem koma að greiningu og þjálfun nemenda í skólaþjónustu.
  • Þátttaka í fræðslu um málþroska, málþroskaröskun og áhrif hennar á möguleika til menntunar.
  • Leiðbeina og fræða foreldra um málþroska og leiðir til að efla hann.
  • Þátttaka í þróun skólastarfs er varðar málþroska og læsi í samvinnu við stjórnendur skóla og samstarfsfólk.
  • Stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum varðandi málþroska og læsi barna á grunnskólaaldri með því að beita snemmtækri íhlutun ásamt því að vera þátttakandi í skipulagðri íhlutun og kennslu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í talmeinafræði og leyfi til að starfa sem talmeinafræðingur.
  • Þekking og reynsla af skólastarfi æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Hæfni til að sinna fræðslu og ráðgjöf til nemenda, starfsmanna og foreldra.
  • Góð almenn tæknikunnátta, svo á fjarkennslubúnað og rafrænar lausir í þjónustu við nemendur, er nauðsynleg.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni.
  • Faglegur metnaður til að efla málþroska og læsi nemenda.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
  • Heilsustyrkur, menningarkort og frítt í sund
  • Samgöngusamningur
  • Gott mötuneyti
Advertisement published30. January 2026
Application deadline19. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags