Skeljungur ehf
Skeljungur ehf
Skeljungur ehf

Tæknisérfræðingur á rekstrarsviði

Vilt þú vinna fjölbreytt starf þar sem tækni, rekstur og lausnamiðuð hugsun fara saman? Skeljungur leitar að metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingi til að ganga til liðs við rekstrarsvið fyrirtækisins.


Í starfinu færð þú tækifæri til að vinna með fjölbreyttan tækni- og tölvubúnað og taka þátt í að tryggja öruggan og skilvirkan rekstur Skeljungs um land allt.


Um Skeljung
Skeljungur er leiðandi þjónustufyrirtæki á sviði orku og rekstrarlausna. Félagið sér um innflutning, dreifingu og sölu á eldsneyti, smurolíum, efnavörum og fjölbreyttum rekstrarvörum fyrir fyrirtæki, sjávarútveg, landbúnað og flugstarfsemi.
Hjá Skeljungi starfar öflugur hópur fólks með fjölbreytta þekkingu og reynslu. Við leggjum áherslu á jákvætt starfsumhverfi, öfluga öryggismenningu og tækifæri starfsfólks til að þróast í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með hugbúnaði og tölvukerfum sem styðja við rekstur
  • Umsjón eð tönkum, dælubúnaði og öðrum tæknilegum búnaði
  • Eftirfylgni með viðhaldi, lögbundnu eftirliti, leyfum og löggildingum búnaðar
  • Umsjón með lager varahluta og tæknibúnaði
  • Pantanir og innkaup á búnaði og varahlutum
  • Samskipti og samstarf við þjónustuaðila, verktaka og samstarfsfólk
  • Þátttaka í umbótum og þróun verkferla sem stuðla að öruggum og skilvirkum rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tæknimenntun, svo sem vélfræði, rafiðn, iðnfræði eða sambærilegri grein er kostur
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný tæknikerfi
  • Reynsla af tæknimálum, viðhaldi eða rekstri tæknibúnaðar er kostur
  • Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og rík öryggisvitund
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi
  • Góð íslensk- og enskukunnátta
Advertisement published6. August 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Eyjaslóð 7
Skútuvogur 1, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags