
HD ehf. Iðn- og tækniþjónusta
HD ehf. er eitt öflugasta iðn- og tækni-þjónustufyrirtækið á Íslandi og þjónustar meðal annars orku- og veitufyrirtæki, stóriðju, sjávarútveg og fiskeldi. HD er framsækið og vel rekið fyrirtæki sem sinnir fjölbreyttum og krefjandi verkefnum tengdum viðhaldi á vélbúnaði, stálsmíði og tækniþjónustu.
Hjá HD starfa um 200 manns á 6 starfs-stöðvum fyrirtækisins í Kópavogi, Mosfellsbæ, Akureyri, Straumsvík, Grundartanga og Eskifirði. Fyrirtækið er vel búið tækjum og aðstöðu sem tryggir hámarks fagmennsku og skilvirkni. Okkar markmið er að veita viðskiptavinum faglega og skilvirka þjónustu sem stuðlar að auknu öryggi, áreiðanleika og hagkvæmni í þeirra rekstri.
Við leggjum ríka áherslu á að skapa gott starfsumhverfi þar sem starfsmenn fá tækifæri til að þróast í starfi og vaxa með fyrirtækinu. Við styðjum framtíðar fagmenn með nemastyrkjum og erum opin fyrir hæfu, áhugasömu og metnaðarfullu fólki sem axlar ábyrgð, sýnir frumkvæði og vill taka virkan þátt í framþróun fyrirtækisins. Við veitum starfsmönnum okkar tækifæri til að þróast í krefjandi og spennandi umhverfi.
Við leitum að einstaklingum sem búa yfir góðum samskiptahæfileikum, vinna vel í teymi og hafa metnað til að skila framúrskarandi starfi. Starfsmenn HD njóta meðal annars líkamsræktarstyrks og heits hádegismatar.
Gildin okkar – öryggi, heiðarleiki, þjónustulund og fagmennska – eru okkur að leiðarljósi í öllum daglegum störfum.
Sviðsstjóri á Akureyri
HD leitar að öflugum sviðsstjóra til að leiða rekstur starfsstöðvar félagsins á Akureyri. Við leitum að einstaklingi með góða þekkingu á málmiðnaði, reynslu af verkstjórn og hæfni til að leiða teymi, efla þjónustu og byggja upp sterk tengsl við viðskiptavini á svæðinu. Sviðsstjóri heyrir beint undir forstjóra HD.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri starfsstöðvar HD á Akureyri
- Samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila
- Stjórnun og stuðningur við starfsfólk
- Yfirumsjón með verkefnum, reikningagerð og kostnaðareftirliti
- Eftirlit með viðhaldi og nýtingu véla og búnaðar
- Þátttaka í uppbyggingu, þróun og stefnumótun fyrirtækisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fagréttindi í iðngrein eða menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af stjórnun, rekstri eða verkstjórn
- Þekking og reynsla á sviði vélbúnaðar og viðhalds
- Góð tölvukunnátta
- Frumkvæði, skipulagshæfni og góð samskiptahæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Advertisement published15. September 2026
Application deadline29. September 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Gránufélagsgötu 47
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Viðhald lyftara og búnaðar í vöruhúsi
Bera hf.

Starfsmaður á hjólbarðaverkstæði á Akureyri
Dekkjahöllin ehf

Standsetningar nýrra tækja
BRP - Ellingsen

Langar þig að vinna á einu flottasta bifreiðaverkstæði landsins ?
Hekla

Rafvirkjar og vélvirkjar
Norðurál

Starfsmaður á tækjaverkstæði - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Öflugur vélvirki/vélfræðingur í Straumsvík
Rio Tinto á Íslandi

Tæknimaður
STOÐ

Bifvélavirki óskast á vörubifreiða verkstæði Krafts
Kraftur hf.

Viðgerðir á vélum og vélbúnaði um borð í skipum.
Diesel Afl ehf.