Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Sviðsstjóri

Harpa leitar að skipulögðum og lausnamiðuðum leiðtoga til að stýra daglegri vinnu sviðsdeildar. Um er að ræða lykilstöðu í framkvæmd viðburða þar sem áhersla er á verkstjórn, teymisstjórnun og skipulag. Viðkomandi ber ábyrgð á því að uppsetningar, niðurtektir og skiptingar milli viðburða gangi hratt, örugglega og faglega fyrir sig.

Starfið er fyrst og fremst stjórnunar- og skipulagsstaða, en krefst jafnframt góðs tæknilegs skilnings og getu til að taka þátt í verklegri vinnu eins og þörf krefur.

Vinnutími að mestu reglulegur í dagvinnu en getur þó kallað á viðveru á öðrum tíma í tengslum við stærri viðburði.

Harpa býður upp á lifandi og fjölbreytt starfsumhverfi þar sem fagmennska, samvinna og metnaður eru í fyrirrúmi.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Yfirumsjón með skipulagningu, uppsetningu og niðurtekt sviðsbúnaðar
• Verkstjórn og dagleg stýring sviðsmanna, tæknifólks og verktaka
• Skipulag skiptinga milli viðburða og samræming verkefna þvert á teymi
• Samskipti við verkefnastjóra, viðskiptavini og aðra samstarfsaðila
• Ábyrgð á öryggismenningu, verklagi, skilvirkni og gæðum vinnu
• Umsjón og viðhald sviðsbúnaðar

Menntunar- og hæfniskröfur

• Reynsla af verkstjórn og skipulagi verkefna
• Umtalsverð reynsla af vinnu við sviðs- eða viðburðatækni
• Góð þekking á ljósa- og hljóðbúnaði
• Sterk samskiptafærni og leiðtogahæfileikar
• Sjálfstæði, skipulagshæfni og geta til að vinna undir álagi
• Gott vald á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið veitir Andri Guðmundsson, framkvæmdastjóri viðburða- og tæknisviðs,  [email protected] 

Advertisement published13. February 2026
Application deadline22. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags