Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Sviðsmaður

Harpa leitar að drífandi og lausnamiðuðum sviðsmanni í öflugt teymi á viðburða- og tæknisviði. Starfið hentar einstaklingi sem nýtur sín í hringiðu tónleika, menningarviðburða og ráðstefna og hefur gaman af fólki og fjölbreyttum verkefnum.

Sviðsmaður sinnir alhliða tæknilegum undirbúningi, þarfagreiningu og verkstjórn viðburða auk þess að sinna umhirðu og viðhaldi búnaðar. Sviðsmaður vinnur náið með verkefnastjórum, listafólki og viðskiptavinum og sér til þess að hver viðburður gangi vel fyrir sig, frá uppsetningu til niðurtektar. Sviðsmaður heyrir undir sviðsstjóra í skipuriti.

Um fullt starf er að ræða. Unnið er samkvæmt vaktafyrirkomulagi sem nær einnig yfir kvöld og helgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þarfagreining verkefna í samstarfi við verkefnastjóra
  • Uppsetning og niðurtekt búnaðar fyrir viðburði
  • Yfirseta og tæknileg umsjón á viðburðum
  • Tilfallandi verkstjórn verktaka á vegum sviðsmanna
  • Umsjón með tæknikerfum Hörpu
  • Umhirða og viðhald tæknibúnaðar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun, t.d. á sviði rafiðna, er kostur
  • Víðtæk reynsla úr tækni- eða viðburðageiranum
  • Góð þekking á ljósa-, hljóð- og myndkerfum, er kostur
  • Reynsla af verkstjórn og að vinna í stórum hópi
  • Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Jákvæðni, glaðlegt viðmót og rík þjónustulund
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Gott vald á íslensku og ensku
Advertisement published5. November 2026
Application deadline17. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags