Víking Brugghús CCEP á Íslandi
Víking Brugghús CCEP á Íslandi

Sumarstörf í Víking Brugghús 2026

Við hjá Víking brugghús erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Aldurstakmark er 18 ára og vinnutíminn er mismunandi eftir störfum. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.

Störf í boði

Fríðindi í starfi

  • Afsláttur af vörum Coca-Cola og aðrir starfsmannaafslættir
  • Frábært mötuneyti
  • Aðgangur að ráðgjafaþjónustu svo sem sálfræði- og félagsráðgjöf að kostnaðarlausu

Hafir þú áhuga á að starfa með okkur í sumar þá endilega sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast, því hvetjum við áhugasama að sækja um sem fyrst.

Ráðningarferlið getur tekið mislangan tíma. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.

Umsóknarfrestur 1. mars 2026

Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar veitir Eggert Sigmundsson [email protected] en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Advertisement published2. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Furuvellir 18, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags