

Sumarstörf hjá Johan Rönning Selfossi
Sumarstörf í verslun Johan Rönning á Selfossi
Fagkaup rekur verslanir Johan Rönning, Sindra og Vatn og veitur í útibúi fyrirtækisins á Selfossi. Um skemmtilegt og fjölbreytt sumarstarf er um að ræða þar sem þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina er í forgangi.
Við leitum að öflugu sumarstarfsfólki í verslun fyrirtækisins á Selfossi. Verslunin selur m.a. rafbúnað til fagfólks ásamt vinnufatnað, verkfæri og pípulagningarvörur. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í góðu starfsumhverfi.
Unnið er að jákvæðu, hvetjandi og öruggu starfsumhverfi þar sem vellíðan starfsfólks er höfð að leiðarsljósi. Starfsfólk fær góða þjálfun og fræðslu við upphaf starfs en reynsla af sölustarfi er góður grunnur fyrir starfið.
Johan Rönning og Fagkaup hvetja áhugasama einstaklinga að sækja um starfið óháð kyni, aldri og uppruna.
Nánari upplýsingar má finna á www.fagkaup.is/laus störf og www.ronning.is
Um 100% starf er að ræða.
- Sala og þjónusta til viðskiptavina
- Móttaka vöru og áfyllingar í verslun
- Almenn verslunarstörf og tilfallandi verkefni
- Reynsla af sölustörfum er kostur
- Rík þjónustulund skilyrði
- Stundvísi, frumkvæði og áreiðanleiki.
- Góð íslenskukunnátta
- Snyrtimennska
- Öflugt félagslíf og virkt starfsmannafélag
- Niðurgreiddur hádegismatur













